Pages

Kevin Durant er maðurinn

Þvílíkur öndvegissnillingur þessi Kevin Durant. Carlisle tekur stóra sjensinn með að krota upp kerfi sem endar með Vince Carter (af öllum) að taka skotið og koma Dallas einu stigi yfir. Þá kemur maður að nafni Kevin Durant til sögunnar...





Thursday, December 29, 2011

Rammólögleg sigurkarfa Dwyane Wade gegn Bobcats




Fáum snillingana í Hardwood Paroxysm til að útskýra fyrir okkur.



Wednesday, December 28, 2011

Vel gert Jerome Simpson

Eflaust allir búnir að sjá þetta en þetta er bara aðeins of svalt...





Tuesday, December 27, 2011

Derrick Rose er maðurinn




Hann er baneitraður þessi drengur. (Þó hann hafi ekki getað drullu á móti Golden State í nótt.) Svakalegt trap hjá Rose og Noah sem er lykillinn af þessu öllu. Ætla ekki að fella dóm á hvort þetta hafi verið skref hjá Deng (útlit fyrir það hins vegar). Frábær vörn svo á háaldraðan Kobe Bryant þarna í lokin. Í guðanna bænum ekki gefa boltann á galopinn Pau Gasol undir körfunni.

LeBron James er ekki í náðinni hjá jólasveininum



"What do you want from Santa? A ring?!!"  Aaaaahahahahahah.  Mér finnst samt beisik að jólasveinninn drekki G&T.

Velkominn í NBA deildina Bismack Biyombo

Eldskírnir nýliðana geta oft verið erfiðar...





Saturday, December 24, 2011

Thursday, December 22, 2011

Lakers fara til Lob City


"This was no preseason game. Kobe Bryant may have laughed about any increased excitement about a Lakers-Clippers exhibition game because of Chris Paul's arrival. But the 19,060 at Staples Center in the Lakers' 108-103 loss Wednesday over the Clippers said otherwise. Fans equally cheered and booed for the Lakers and Clippers. Laker and Clipper fans competed with each other over chants. The level escalated after each Blake Griffin dunk or Andrew Bynum putback. Matt Barnes and Josh McRoberts both played chippy with Griffin whenever he entered the lane. This marks the beginning of a more legitimate backyard matchup."
via Los Angeles Times

Wednesday, December 21, 2011

CP3 krossar menn fram og aftur

Hugsa að margir Lakers aðdáendur hafi langað til að aflífa David Stern þegar þeir horfðu á þennan leik...





Cult of Biyombo

Verð að viðurkenna að ég er pínu spenntur fyrir að sjá hvernig þessum strák vegnar í deildinni...



Tuesday, December 20, 2011

Troðsla ársins

og það í Pre-Season...





Sunday, December 18, 2011

Jimmer Fredette byrjar vel

21 stig, 7/11 þar af 4/6 í þristum....



Fyrsti leikur Ricky Rubio

6 stig, 6 fráköst og 7 stoðsendingar...



Friday, December 16, 2011

Þetta verður seint þreytt


Heimsfriðurinn verður mikið í NBA fréttum í vetur...
"I'm probably gonna bring him off the bench," acknowledged Brown.

Considering how World Peace is coming off a 2011 season disappointing enough to prompt some NBA analysts to wonder if the Lakers might use the new CBA's amnesty provision on him, the natural inclination would be to frame this decision as a demotion. But according to the coach and player, who've discussed the matter, it's actually a matter of strengthening the second unit while increasing World Peace's opportunities.
HookUp:  ESPN.com

Eitt sinn var það dauðadómur að lenda hjá Clippers

Það verður hins vegar óneitanlega spennandi að fylgjast með þeim í vetur...



Thursday, December 15, 2011

Wednesday, December 14, 2011

Tuesday, December 13, 2011

Gamli skólinn: Larry Bird

Menn voru skíthræddir við djömpskotið hans Larry Legend back in the day.... og möllettinn hans líka.  Sést best á félaganum sem hann feikar upp úr sokkunum í þessu myndbandi og smettar svo Jeff Turner í kjölfarið.  Respect.





Bara til einn Metta World Peace

lSkyggnst inn í innstu skúmaskot huga Metta World Peace... Haaaaaahhhahahahah!





Perk er í bullandi formi

Búinn að missa einhver 10-15 kg og lítur vel út...



Monday, December 12, 2011

Farvel Brandon Roy

Á meðan snillingurinn Brandon Roy leggur skóna á hilluna vegna þrálátra meiðsla (aðeins 27 ára gamall), krotar eilífðarsekkurinn Eddy Curry undir samning hjá Miami Heat.... Lífið er tík.





ESPN reynir að bæta ímynd LeBron James

...og vernda eigin fjárfestingu í leiðinni.





Chris Paul til LA........Clippers?

Nú er á teikniborðinu treid milli New Orleans Hornets og LA Clippers sem myndi senda CP3 til Englaborgarinnar. Meira á ESPN.com


Gömul og góð frá D-Wade

2003 NCAA Tournament Midwest Regional Finals...





Doug Anderson putback

Muna að stíga út strákar...





Indiana bözzerinn

Tröllaleikur í Indiana sem endaði á flautukörfu frá Christian Watford...



Bara til einn World Peace

"...and I should be amnessity or aminessity or whatever that thing is called."





Saturday, December 10, 2011

Wednesday, December 7, 2011

Spá fyrir IEX deild karla

Í upphafi tímabils fáum við alltaf spár frá fjölmiðlum um lokastöðu deildarinnar. Þær spár eru (eðlilega) oft ekki nákvæmar en byggðar á samsetningu liðs í upphafi leiktíðar og tilfinningu blaðamanna fyrir hvernig því liði muni vegna á leiktíðinni. Til er tölfræðileg aðferð til að áætla eða "spá" fyrir um árangur liða sem er byggð á meðaltölum, ferviki og samviki á stigaskori liða vs. stigaskori andstæðinga þeirra. Svokölluð "Correlated Gaussian Method".

Þessi aðferð hefur skilað þónokkuð nákvæmum spám fyrir NBA lið en þess ber þó að geta að 82 leikir gefa mun betra úrtak til könnunar en 22 leikir.

Ég brá á það ráð að heimfæra þessa aðferð á Iceland Express deild karla til að kanna áætlaðan árangur liðanna og þá stöðu deildarinnar í lok leiktíðar. Nokkur atriði sem þó þarf að hafa í huga varðandi þessa athugun:
  • Eins og áður sagði skiptir stærð úrtaks mjög miklu máli um nákvæmni útkomunnar en til þess að fá fleiri leiki í úrtakið bætti ég við leikjum liðanna í Lengjubikarnum (að undanskildum leikjum liðanna gegn liðunum í 1. deild).
  • Spáin tekur ekki tillit til hvernig dagskrá liðanna lítur út heldur byggir aðeins á sögulegum gögnum.
  • Mikil frávik í stigaskori og úrslitum liða dregur úr áætluðum árangri. Lið sem eru samkvæm sjálfum sér (consistent) ná meiri árangri en önnur sambærileg lið. Stöðugleiki í stigaskori er lykillinn að velgengni samkvæmt þessari athugun.

#
Lið
W
L
W/L%
Win%
StDev
Sæti
Spá W
Spá L
1
Grindavík
13
0
100,00%
94,88%
8,56
1
21
1
2
Stjarnan
7
4
63,64%
71,64%
12,40
2
16
6
3
Keflavík
10
3
76,92%
71,55%
12,28
3
16
6
4
Snæfell
6
6
50,00%
64,59%
8,46
8
14
8
5
Þór Þorlákshöfn
7
5
58,33%
62,63%
10,11
5
14
8
6
Njarðvík
7
4
63,64%
54,59%
16,50
6
12
10
7
KR
7
4
63,64%
53,58%
16,52
4
12
10
8
ÍR
4
7
36,36%
33,47%
13,62
7
7
15
9
Fjölnir
3
8
27,27%
29,26%
9,58
9
6
16
10
Haukar
3
8
27,27%
27,84%
14,21
11
6
16
11
Tindastóll
2
9
18,18%
16,81%
9,14
10
4
18
12
Valur
0
11
0,00%
6,59%
9,02
12
1
21

Sjá má á töflunni hér að ofan vinningshlutfall liðanna það sem af er leiktíð (með Lengjubikar), áætlað vinningshlutfall (Win%), staðalfrávik í mismun stigaskors milli liðs og andstæðinga (StDev), í hvaða sæti liðin eru þegar þetta er skrifað og svo spá um stöðu deildarinnar í lok tímabils. Töflunni er raðað upp eftir Win%.

Grindavík nánast ósigrað alla leiktíðina með aðeins einn tapleik og miðað við hvernig liðið hefur spilað framan af ætti það svosem ekki að vera ólíklegt. Stjarnan og Keflavík nánast hnífjöfn í 2. og 3. sæti.  Athygli vekur að Íslandsmeistararnir eru fyrir miðri deild í 7. sæti miðað við þetta. Mínir menn hins vegar í sínu venjulega 8. sæti. Snæfell eru með minnsta staðalfrávikið í mismuni á stigaskori sem gefur til kynna mjög stöðugan leik en eru aðeins of mikið á taphliðinni til að komast ofar í töfluna.

Út frá þessu má álykta að þau lið sem spila stöðugan leik og sigra oftast haldast ofarlega í töflunni líkt og Grindavík sem er að vinna alla leiki sína með 14 stigum að meðaltali. Lið sem spila "stöðugan" leik en tapa oftast eru neðarlega í töflunni sbr. Valur sem hefur tapað öllum leikjum sínum með 15 stigum að meðaltali. Lið sem spila óstöðugan bolta, vinna stórt og tapa svo stórt og óreglulega líka, lenda oftast við miðjuna. Tökum sem dæmi KR sem hefur unnið 7 af 11 leikjum sínum í vetur en hæsta gildi sigurs er 36 en lægsta gildi taps -26. Sveiflurnar eru miklar sem sést best í staðalfráviki KR sem er 16,52 - hæst í deildinni (rétt fyrir ofan Njarðvík).
 

Tuesday, December 6, 2011

Monday, December 5, 2011

Saturday, December 3, 2011

Kendrick Perkins tók á því í verkbanninu



Á meðan Glen "Big Baby" Davis var að...



Friday, December 2, 2011

"Hvað er í þessum NBA samningum?" - Sportrásin á Rás 2


Undirritaður var fenginn til að fjalla um skyndileg lok kjaradeilunnar í NBA deildinni í vikunni, hjá Dodda litla á Sportrásinni.

Tjekkið á þessu.

http://ruv.is/frett/korfubolti/hvad-er-i-thessum-nba-samningum