Bulls 2-1 og D-Rose með playoff career-high 44 stig...
Showing posts with label 2011 Playoffs. Show all posts

Saturday, May 7, 2011
Thursday, May 5, 2011
Bulls skella í lás
Chicago Bulls vinna engar fegurðarsamkeppnir með sigrum sínum það sem af er úrslitakeppni. Voru alls ekki sannfærandi gegn Indiana og töpuðu svo leik 1 gegn Atlanta eins flestir vita. Leikur 2 var engin undantekning frá þeirri hegðun hvað sóknarleikinn varðar þar sem hann var oft á tíðum tilviljunarkenndur og flæðið lítið. Bulls hins vegar skelltu í lás og spiluðu grjótharðan varnarleik.
Bulls áttu einhvern besta varnarleik sem ég hef séð lengi, með defensive rating upp á 83,8 eða leyfðu Hawks aðeins 83 stig per 100 sóknir - það lægsta sem af er þessari úrslitakeppni. Hawks skoruðu aðeins 26 körfur utan að velli (26/77; 33,8%) og voru 3/13 í þristum (23%). Bulls unnu fráköstin 58-39 en Bulls rifu niður 81,5% af öllum varnarfráköstum sem í boði voru. Hawks fengu varla frið til að draga inn andann í lok fjórða hluta þegar Bulls gengu frá leiknum.
Ég ætla hins vegar ekki að fjölyrða frekar um sóknarleik Chicago sem var ekki eins fallegur. En sigur er sigur, hversu ófríður sem hann er.

Ron Artest tryggir sér frí í næsta leik í Dallas
Hvað getur hann gert að því þó Barea sé svona lítill... meina komm on.
Wednesday, May 4, 2011
Miami maskínan að hrökkva í gang
Í sumar lofaði LeBron James Miami borg ekki fjórum, ekki fimm, ekki sex, heldur ótal titlum í framtíðinni nú þegar hin heilaga þrenning hafði sameinast með hæfileika sína á South Beach. Veturinn fór hins vegar brösulega af stað, liðið fór að tapa fyrir ólíklegustu liðum og menn farnir að fjölyrða um að allt hæpið í kringum The Big Three væri uppfullt af lofti.
Í byrjun mars mánaðar virtust leikmenn liðsins vera alveg að þrotum komnir andlega og sögusagnir á ferð um hugsanlegan brottrekstur Erik Spoelstra þjálfara liðsins. Mikið var gert grín að því að leikmenn hafi farið bókstaflega að grenja í búningsklefanum eftir naumt tap gegn Chicago Bulls í United Center. Hafði þá liðið tapað fjórum leikjum í röð og 5 af síðustu 6. Sú taphrina endaði í 5 með sigri á Lakers 10 mars.
Heat voru 18-3 það sem eftir lifði tímabils og skutu sér fyrir ofan Boston Celtics rétt fyrir lok tímabilsins eftir arfaslaka frammistöðu C's á lokasprettinum. Margir bentu á að Celtics væru að hvíla lúin bein fyrir úrslitakeppnina en kannski var þetta bara forsmekkurinn af því sem koma skyldi.
Celtics völtuðu yfir Knicks, ef ekki er talinn leikur 2 í Boston þar sem Knicks hefðu mögulega getað stolið sigri, og sópuðu þeim út 4-0. Knicks áttu aldrei sjens með Billups á bekknum í meiðslum og STAT nánast í göngugrind.
Bæði liðin fengu þokkalega hvíld fyrir stefnumót sitt í næstu umferð og stefndi allt í hressandi viðureign. Úr varð hins vegar að af þessum tveim leikjum sem búnir eru hafa Heat gersamlega slátrað Celtics. Þá á ég ekki við muninn á milli liðanna í stigum talið, heldur hvernig liðin eru að spila. Heat eru einfaldlega hungraðri, yngri, beittari, sneggri og aldrei þessu vant... farnir að spila fantavörn. Talandi um vörn þá virðist sem ákvörðun Danny Ainge um að senda Kendrick Perkins til Oklahoma Thunder fyrir Jeff Green og Nenad Krstic vera að springa í andlitið á honum. Jú, mikið rétt... ég hrósaði kallinum fyrir að toga í gikkinn á sínum tíma en nú er komið í ljós að hann veðjaði allt of miklu á að Shaq yrði fær í að skila einhverjum mínútum með liðinu í úrslitakeppninni, sem ekki hefur gengið eftir. Celtics eru orðnir soft.
Á hinum endanum eru Lebron og Wade að spila eins og þeir áttu alltaf að gera í upphafi - saman. Þeir ógna stanslaust til skiptis, finna hvorn annan hvar sem er á vellinum og Celtics vörnin veit aldrei í hvorn fótinn hún á að stíga því ógnin er út um allt. Ekki skaðar heldur þegar skytturnar í liðinu er farnar að negla niður þristum eins og Jones í leik 1. Jafnvel Chris Bosh hefur hrist af sér sykurpúðana og er að sýna gamla takta. Ef Miami halda svona áfram, og Chicago Bulls rífa sig ekki upp á rassgatinu, sé ég ekkert lið hindra Heat á leið sinni í úrslitin.
Eitt ber þó að hafa í huga að aðeins einn af þessum leikjum hafa verið virkilega jafnir á lokamínútunni og það var einmitt tapleikurinn gegn Philly þar sem LeBron átti færi á að klára leikinn án árangurs. Takist Celtics að halda leikjunum jöfnum munu LeBron og Wade hafa það sem þarf til að klára dæmið?

Monday, May 2, 2011
Sunday, May 1, 2011
Stjörnustríð hafið - Celtics vs. Heat
Veislan er hafin! Heat-Celtics serían að rúlla af stað í kvöld. Samanlagður stjörnuleikjafjöldi leikmanna Heat og Celtics er 80. Það er met. Fyrra metið var 68. Stjörnustríðið er hafið! Hver verður Obi-Wan Kenobi þessarar seríu?

Lykillinn fyrir Heat er að koma D.Wade í einhvern ham á móti Celtics. Hann er einungis með 13 stig að meðaltali í vetur í leikjum Heat á móti þeim grænu í vetur. Lægsta af öllum liðum í deildinni.
Fyrir Celtics þá er Rondo lykillinn að góðum leik þar. Hann var frábær í Knicks seríunni eftir að hafa hikstað undanfarið. Svo verður athyglisvert að fylgjast með Bosh sem er í fyrsta skipti kominn í gegnum fyrstu umferð kljást við Garnett.
Ég ætla skjóta á að Celtics taki þetta í 6 leikjum. Hverju spáir þið?
Friday, April 29, 2011
Tuesday, April 26, 2011
Er sagan að endurtaka sig?
Fari svo sem horfir þá mun Memphis slá út San Antonio (að sjálfsögðu er þetta ekki búið og ég trúi að mínir menn komi til baka). Þetta verður þá í 4.skiptið í sögu NBA sem að lið númer 8 slær út lið númer 1 í fyrstu umferð.
Það er ekki svo langt síðan þetta gerðist síðast. Rifjum upp þegar Warriors slógu út Mavs í fyrstu umferð árið 2007.
Monday, April 25, 2011
Lou Williams FTW
Lou Williams neglir einum langt neðan úr bæ til að skila Philly loksins sigri á Miami og halda lífinu í seríunni. LeBron James átti svo loka skotið hjá Miami á nokkrum sekúndum í sókninni á eftir... en kláraði ekki. Spurning um að fara að láta D-Wade sjá um að klára þessa jöfnu leiki á lokasekúndunum?
Andrew Bynum vs. Chris Paul
Chris Paul grillar Andrew Bynum með nokkrum grimmum krossum og Bynum reynir sitt besta að halda sér á fótunum. Ótrúlegt að hann hafi ekki meitt hnéið í þessum dansi þarna.
Chris Paul með 27 stig (7/14 í skotum og 11/11 í vítum), 13 fráköst og 15 stoðsendingar... FTW! Serían jöfn í 2-2.

Tuesday, April 19, 2011
Chicago Bulls í vandræðum með Indiana Pacers
Leikir helgarinnar voru allir mjög hressandi svo ekki sé meira sagt. Enginn leikur endaði með meira en 10 stiga mun og meðalstigamunurinn var aðeins 6 stig í þessum leikjum. Risastórar körfur í lokum nokkurra leikja og nokkur upset í vesturdeildinni sem aðeins rekur stoðum undir hversu jöfn og sterk hún er.
Pacers ætluðu heldur betur að stríða mínum mönnum í Bulls strax á fyrstu mínútu og var mér hætt að lítast á blikuna þegar líða fór á þriðja hluta þar sem munurinn fór yfir 10 stig. Bulls gáfu hins vegar í um miðjan fjórða hluta og 14-1 rönn kom þeim aftur inn í leikinn sem Kyle Korver klárað svo með þrist, John Paxon style. Korver náði að bjarga sér fyrir horn í seinni hálfleik en mig langaði óstjórnlega til að kirkja manninn í fyrri hálfleik - tapandi boltanum trekk í trekk á mikilvægum augnablikum.
Meðferð Tyler Hansbrough á Carlos Boozer kom mér nákvæmlega ekkert á óvart því þetta er nákvæmlega það sama og gerðist í síðasta deildarleik þessara liða sem Indiana unnu með stórleik frá Psycho-T. Boozer ræður bara ekkert við strákinn þegar hann er í ham. Miklu grimmari, sneggri og með deadly mid-range djömper sem Booz verður að hafa fyrir að dekka. Það sem kom hins vegar skemmtilega á óvart var frábær leikur frá Darren Collison sem ég vissi að væri góður, en ekki SVONA góður. Rose var í bullandi vandræðum með hann þar sem hann fór oft illa með Bulls vörnina með einföldum pick-n-roll leikfléttum. Hann var ekki fallegur en sigur var það engu að síður.
Þá komum við að öðrum leik, þar sem ég hélt að mínir menn myndu nú sýna sitt rétta andlit - en heldur betur ekki. Hittu ekki rassgat og voru í bullandi vandræðum með þetta lið sem lenti í áttunda sæti austurdeildarinnar með um 45% vinningshlutfall. Korver enn og aftur með stóran þrist í krönsj tæm sem kom Bulls þægilega yfir en klúðursleg villa Derrick Rose á AJ Price í þriggja stiga skoti kom sér ansi illa. Enn og aftur ljótur sigur, en sigur engu að síður.
Bulls eru þó 2-0 í þessari seríu en fara ekki beint stútfullir sjálfstrausts til Indianapolis. Bulls hafa unnið báða þessa leiki, en að miklu leyti vegna þess að Pacers klúðruðu þeim báðum á ögurstundu með ósamstíga varnarleik. Allt of mikið hangir á Derrick Rose í sóknarleik Bulls sem virðist nánast eingöngu snúast um hvað hann býr til. Þetta er hins vegar strategían hans Tom Thibodeau sem hefur skilað þeim þangað sem þeir eru í dag. Vörn ofar öllu, sóknin fylgir í kjölfarið.

Friday, April 15, 2011
Thursday, April 14, 2011
Subscribe to:
Comments (Atom)