Showing posts with label Heimsmálin. Show all posts
Showing posts with label Heimsmálin. Show all posts
Thursday, March 14, 2013
Monday, March 4, 2013
Tuesday, November 13, 2012
Friday, August 26, 2011
RonRon verður Metta World Peace
Eldflaugafræðingurinn Ron Artest er búinn að fá það í gegn að breyta nafninu sínu og mun frá og með deginum í dag heita Metta World Peace.
World Peace mun einnig breyta um númer hjá Lakers og verður númer 70 en það verður þriðja númerið hans á þremur árum hjá Lakers.
Um númerabreytinguna hafði World Peace þetta að segja: "I’m changing it to 70 because it’s like something to do with the universe." Þá vitum við það.
Það sem er næst hjá Metta World Peace kallinum er að spila í Englandi þar sem hann fær 2500 dollara á mánuði.
Þess má geta að á síðasta tímabili fékk Ron Artest rúma 2600 dollara á MÍNÚTU hjá Lakers.
Heimsfriðurinn er dýr.
Monday, August 15, 2011
LeBron James skólaður af kínverskum leikmanni
Þetta eru samskipti Kína og Bandaríkjanna í hnotskurn. Kína á beisíklý Bandaríkin eins og staðan er í dag, eiga stærstan forða dollara í heiminum og eru stærstu lánadrottnar Bandaríkjanna. Engu líkara en þetta hafi verið raunin á körfuboltavellinum einnig þegar King James hélt í kynningarferð til Kína. Þarna er (af mörgum talinn) besti körfuboltaspilari heims að spila á móti kínverskum guttum og fær væna útreið frá einum þeirra á 48 sekúndum. Rændur, smettaður og fær svo þrist í grillið í lokin.
Ok... kannski var þetta ekki alveg smettun og kannski er hann ekki að spila sinn rétta leik þarna og ekki mikið að marka þetta en að sjá hvernig hann spilar þarna minnir óneitanlega á leik 6 á móti Dallas í júní. Just sayin'
Update: Þetta er víst frá Tævan en ekki Kína skv fréttatilkynningu frá Nike... Tævan heitir reyndar öðru nafni Republic of China þannig að þetta var ekki fjarri lagi. Góð saga samt.
Update: Þetta er víst frá Tævan en ekki Kína skv fréttatilkynningu frá Nike... Tævan heitir reyndar öðru nafni Republic of China þannig að þetta var ekki fjarri lagi. Góð saga samt.
Subscribe to:
Comments (Atom)

