Showing posts with label Chicago Bulls. Show all posts
Showing posts with label Chicago Bulls. Show all posts

Tuesday, April 23, 2013

Saturday, July 14, 2012

Áhrif skóframleiðenda eru ómæld í NBA deildinni


Í vikunni sá ég tvít frá Doug Thonus sem er bloggari á Chicago Bulls Confidential blogginu, þar sem hann útilokaði skipti sem kæmu Dwight Howard til Chicago.  Ekki það að ég hafi verið að halda í mér andanum þar til D12 fer til Chicago, en það var hins vegar ástæðan sem vakti snögglega athygli mína.


Þar hafiði það! Adidas skó-risinn og spons-samningurinn hans við Dwight Howard eru áhrifabreyta í vali leikmannsins á vinnustað í framtíðinni.

Staðreyndin er hins vegar sú að Adidas eru nú þegar með skrilljóna-samning við Chicago Bulls leikmanninn Derrick Rose og hafa ekkert að gera við Dwight Howard í sama liði.  Einhvers staðar las ég líka að það er termination-klausa í samningnum hans ef hann fer í eitthvað af hinum "Adidas liðunum".

Howard gæti tapað eitthvað á bilinu 3-10 milljónum dollara við að semja við Chicago.  Maður hugsar þá, so what... Nike pikka hann upp áður en Adidas henda samningnum hans í tætarann.  Jú, mögulega en þar væri hann bara einn af einhverjum 5-10 leikmönnum sem fá fría skó og mæta annað slagið í photoshoot fyrir Nike.  Hjá Adidas er hann einn af tveimur aðalmönnunum.

Eitt sinn hélt ég að það væri heiðurinn að fá greitt fyrir að spila hina fögru íþrótt í bestu deild í heimi sem keyrði menn áfram... en það er orðið morgunljóst að Benjamin Franklin sálugi keyrir þessa deild áfram en ekki faðir körfuboltans, James Naismith.

Monday, August 15, 2011

Friday, July 1, 2011

Shannon Brown losar sig frá Lakers


Shannon Brown ákvað núna áðan, rétt fyrir verkfallið að nýta sér ekki valrétt til að framlengja samning sinn við Los Angeles Lakers um eitt ár í viðbót, heldur kanna ástandið á markaðnum.

Matt McHale hjá By The Horns skrifaði nýlega:

"Shannon Brown: Here’s an intriguing possibility. Brown is a super athletic player who can finish at the rim (especially in transition) and shoot from midrange and long range. He doesn’t have great handles and can’t create his own shot. He also doesn’t get to the line as often as his athleticism should allow. Those are problems. As is his relatively low accuracy from three-point range (34.9 percent last season). But Brown has championship pedigree, loads of potential, and (most likely) a low price tag. Plus Chicago is his home town. He fits in with the whole “high character” and “build for the future” components of the team’s culture."

Gæti verið hressandi að sjá Brown í rauðu...

Saturday, May 7, 2011