Þegar þessi maður talar, þá er ekki hægt annað en hlusta...
Showing posts with label The G.O.A.T.. Show all posts
Showing posts with label The G.O.A.T.. Show all posts
Tuesday, May 21, 2013
Friday, May 17, 2013
Phil Jackson segir loksins opinberlega það sem allir vita
Þeir sem hafa fylgst með undanfarið hér á Ruslinu ættu að vita að undirritaður er tiltölulega hliðhollur Michael Jordan í öllum samanburði milli þessara tveggja leikmanna. Það hefur oft áður verið fjallað um þetta hér.
Hér höfum við hins vegar eina manninn á öllu jarðríki sem að mínu mati hefur bakgrunn, þekkingu og reynslu til að skera úr um þetta. Zen meistarinn hefur úrskurðað í þessum deilumáli í eitt skipti fyrir öll:
Michael Jordan var, er og mun alltaf vera betri leikmaður en Kobe Bryant.
Ekki misskilja mig samt. Mér finnst Kobe Bryant stjarnfræðilega góður leikmaður. Sá sem kemur næst því að jafnast á við The G.O.A.T. (LeBron vinir, slakið... gefið honum nokkur ár í viðbót áður en honum verður bætt í umræðuna).
Nokkrir útdrættir úr bókinni hans Jackson hafa verið birtir á netinu og þar er m.a. þetta:
"Michael was more charismatic and gregarious than Kobe. He loved hanging out with his teammates and security guards, playing cards, smoking cigars, and joking around," Jackson said in the book, which was obtained in advance by The Times.
"Kobe is different. He was reserved as a teenager, in part because he was younger than the other players and hadn't developed strong social skills in college. When Kobe first joined the Lakers, he avoided fraternizing with his teammates. But his inclination to keep to himself shifted as he grew older. Increasingly, Kobe put more energy into getting to know the other players, especially when the team was on the road."Þeir eru ólíkar persónur. Ekkert óeðlilegt við það. Kobe átti heldur enga eldri bræður til að berja í sig hörkuna líkt og MJ hafði.
"No question, Michael was a tougher, more intimidating defender. He could break through virtually any screen and shut down almost any player with his intense, laser-focused style of defense," said Jackson, who coached Jordan to six championships and Bryant to five.
"Kobe has learned a lot from studying Michael's tricks, and we often used him as our secret weapon on defense when we needed to turn the direction of a game. In general, Kobe tends to rely more heavily on his flexibility and craftiness, but he takes a lot of gambles on defense and sometimes pays the price."Þetta á hins vegar að koma engum á óvart. Þó Kobe sé gríðarlega öflugur varnarmaður á hann ekkert í MJ í þeirri deild. Jordan færði líka fókusinn í sínum leik sífellt meira á varnarhliðina eftir því sem leið á ferilinn. Vörn vinnur titla, krakkar mínir.
"Michael was more likely to break through his attackers with power and strength, while Kobe often tries to finesse his way through mass pileups," Jackson wrote. "Michael was stronger, with bigger shoulders and a sturdier frame. He also had large hands that allowed him to control the ball better and make subtle fakes.
"Jordan was also more naturally inclined to let the game come to him and not overplay his hand, whereas Kobe tends to force the action, especially when the game isn't going his way. When his shot is off, Kobe will pound away relentlessly until his luck turns. Michael, on the other hand, would shift his attention to defense or passing or setting screens to help the team win the game."Hér eigast hins vegar við ólíkir tímar og ólíkar deildir. Þeir sem hafa stúderað feril Michael Jordan ætti að vera kunnugt um The Jordan Rules sem var stefnuyfirlýsing meistaraliðs Detroit Pistons og gekk út á það að lemja á og hægja þannig á Jordan - sama hvað það kostaði. MJ varð að mæta þeirri meðferð með harðari árásum á körfuna.
Án þess þó ég felli einhvern dóm á Kobe Bryant í þessum efnum þá hefur deildin mýkst umtalsvert frá tíma Jordan-reglnanna og stjörnur fá oft meiri vernd frá dómurum gegn áræðnum varnarmönnum.
Það er alla vega deginum ljósara að maður þarf að tékka á þessari bók.
Wednesday, February 20, 2013
50 bestu tilþrif Michael Jordan
Sjáið þennan stórkostlega snilling! Þegar maður rennir yfir þessi tilþrif öll í einu skilur maður einfaldlega ekki hvers vegna enn verið er að bera þennan körfuboltaGUÐ saman við aðra lifandi menn í deildinni í dag. Kobe er Kobe, LeBron er LeBron... Michael Jordan er The G.O.A.T. -- end of story.
Sunday, February 17, 2013
Friday, January 18, 2013
Friday, January 4, 2013
Wednesday, December 12, 2012
12 dagar til jóla
12 dagar til jóla þann 12.12.'12 og því nauðsynlegt að birta mynd við hæfi. Það er "geitin" sjálf Michael Jordan, aldrei þessu vant í búningi nr. 12 hjá Chicago Bulls árið 1990. Búningnum hans nr. 23 hafði verið stolið þetta kvöld og fékk hann þennan til afnota í staðinn. Það sló kauða ekki svo mikið út af laginu þar sem hann smellti 49 kvikindum í trýnið á Orlando Magic.
Wednesday, August 29, 2012
Michael Jordan vs. Kobe Bryant
Ég man ekki til þess að Kobe Bryant hafi nokkurn tíman opinberað það að hans eina markmið í lífinu sé að toppa körfuboltaferil Michael Jordan, þó óteljandi vísbendingar séu því til sönnunar - eins og að skipta númeri sínu í 24 (einu meira en MJ) og taka númer 10 í landsliðinu (einu meira en MJ). Ferlar þessarra leikmanna eru í aðalatriðum nánast þeir sömu fyrir utan einn NBA meistaratitil sem Jordan á yfir Kobe.Það er engu logið um það að það er mikill svipur með þessum leikmönnum en aldrei hef ég sætt mig við miklar samlíkingar á þeim... fyrr en nú þegar ég horfði á myndbandið hér að neðan. Myndband sem sýnir svo ekki verði um vafist að þessir leikmenn eru ekki bara svipaðir á blaði - heldur einnig inni á vellinum. Að horfa á þetta myndband er eins og að horfa á vel heppnaða endurgerð af kvikmynd. Skýrari mynd og betra hljóð... en myndefnið er NÁKVÆMLEGA ÞAÐ SAMA!
Eftir þetta er ég ekki í nokkrum vafa um að Kobe heldur lista yfir það sem hann á eftir að toppa MJ í og hann er með mynd af honum heima hjá sér sem hann segir daglega við: "I'm coming to get you!"
Monday, August 27, 2012
The Legends
Eitt allra magnaðasta Mix-myndband sem ég hef lengi séð... LeBron, Durant, Wade... hvolpar. Þessir gaurar ruddur brautina fyrir þá alla.
Tuesday, June 12, 2012
Fyrsta og annað sætið í MVP kosningu mætast í úrslitum
Í tólfta sinn í sögu NBA deildarinnar mætast í Finals, verðmætasti leikmaður deildarinnar og sá sem lenti í öðru sæti í þeirri kosningu. Hér að neðan eru þeir taldir upp sem mæst hafa í úrslitum, MVP á undan og annað sætið á eftir. Þeir sem stóðu uppi sem meistarar eru feitletraðir.1957 - Bob Cousy vs. Bob Pettit
1961 - Bill Russell vs. Bob Pettit
1963 - Bill Russell vs. Elgin Baylor
1967 - Wilt Chamberlain vs. Nate Thurmond
1970 - Willis Reed vs. Jerry West
1980 - Kareem Abdul-Jabbar vs. Julius Erving
1985 - Larry Bird vs. Magic Johnson
1991 - Michael Jordan vs. Magic Johnson
1992 - Michael Jordan vs. Clyde Drexler
1997 - Karl Malone vs. Michael Jordan
1998 - Michael Jordan vs. Karl Malone
2012 - Kevin Durant vs. LeBron James
Í níu af þessum ellefu skiptum sem þetta hefur gerst, hefur verðmætasti leikmaður deildarinnar unnið titilinn. Í hin tvö skiptin voru það ómannleg kvikindi eins og MJ og Magic sem brutu þá reglu. Í níu af þessum ellefu skiptum hefur liðið sem vann meistaratitilinn verið með heimavallarréttindin og enn og aftur voru það Magic og Jordan sem leiddu þar sín lið alla leið.
Sagan er ekki með LeBron James þessa ferðina frekar en fyrri daginn. Það getur hins vegar allt gerst í Finals og það er það sem gerir þessa íþrótt svo skemmtilega.
Ég segi hins vegar að Oklahoma Thunder muni taka þessa seríu í sex leikjum.
Thursday, March 1, 2012
Monday, February 27, 2012
Allt er fertugum fært
Fertugur Michael Jordan sýnir hér gamla takta í síðasta Stjörnuleiknum sínum árið 2003 (hafði hitt 8 af 26 þegar hér er komið) þegar hann fer með einn besta varnarmann deildarinnar á þessum tíma í skólann og setur fadeaway djömper í grillið á honum til að setja austrið 2 stigum yfir. Það var svo snillingurinn Jermaine O'Neal sem braut á Kobe í þriggja stiga skoti í næstu sókn. Kobe setti 2 af 3 og vestrið jarðaði svo austrið í annarri framlengingunni.
Friday, February 17, 2012
Friday, January 27, 2012
Michael Jordan: Mind of a Champion
Tim Grover á klárlega stóran þátt í velgengni Michael Jordan líkt og hann hefur gert með Dwyane Wade...
Friday, January 13, 2012
Wednesday, November 23, 2011
Friday, November 18, 2011
MJ er high roller
Stacks on stacks on stacks... sýnist ég sjá bara big-face bills á borðinu, a.k.a Benjamins a.k.a. $100.
Thursday, November 17, 2011
Killer First Step hjá MJ
Fátt skilur andstæðinginn meira í rykinu en gott fyrsta skref... leyfið MJ að sýna ykkur hvernig.
Subscribe to:
Comments (Atom)










