101-51 var niðurstaðan en fyrir okkur sem sjáum alltaf glasið hálffullt, verður það ekki að teljast afrek að halda þessu liði "bara" í 101 stigi? Jus'sayin.
Showing posts with label Kemur næst. Show all posts
Showing posts with label Kemur næst. Show all posts
Wednesday, July 25, 2012
Jonas Valanciunas stöffar á Pavel Ermolinski
Ísland var engin fyrirstaða fyrir sterku ólympíuliði Litháa í vináttuleik í gær. Ekki svosem furða þar sem litháíska liðið samanstendur af alla vega 3 ef ekki fleiri NBA leikmönnum. Hér er einn þeirra, Toronto Raptors leikmaðurinn og sjöfetungurinn Jonas Valanciunas að troða all hressilega á kollinn á honum Pavel Ermolinski.
101-51 var niðurstaðan en fyrir okkur sem sjáum alltaf glasið hálffullt, verður það ekki að teljast afrek að halda þessu liði "bara" í 101 stigi? Jus'sayin.
101-51 var niðurstaðan en fyrir okkur sem sjáum alltaf glasið hálffullt, verður það ekki að teljast afrek að halda þessu liði "bara" í 101 stigi? Jus'sayin.
Tuesday, October 11, 2011
Tæpt er það
Það ætti öllum að vera ljóst að PAxel "kláraði" KR með flautuþrist í leik um titilinn Meistari meistaranna. Íþróttadeild St.2 fór yfir málið og sýndi fram á að klúður á ritaraborði DHL hallarinnar hafi orðið til þess að hann náði af skoti í tæka tíð. Brynjar Þór Björnsson, KR-ingur sem nú leikur með Jämtland í sænsku deildinni, deildi hins vegar þessari mynd með okkur þar sem ekki er annað hægt að sjá en þetta sé ANSI tæpt. Erfitt er að sjá á myndinni hvort PAxel hafi verið búinn að sleppa boltanum á þessu augnabliki en manni sýnist ekki. Það sést hins vegar að klukkan er á núlli á hliðarkörfunni.
Hefði ritaraborðið sett klukkuna af stað á réttum tíma hefði þetta verið útilokað allan tímann. Það nær enginn að grípa bolta, taka hann niður og fleygja upp skoti á 0,57 - hvað sem PAxel segir.
Friday, September 2, 2011
Subscribe to:
Comments (Atom)
