"Who? I don’t even know who that is." - J.R. Smith spurður um Jason Terry
Tuesday, April 30, 2013
The Only Gay In The Village
Ruslið tekur ofan fyrir Jason Collins fyrir að hafa hugrekki til að koma út úr skápnum á meðan hann er enn að spila.
Monday, April 29, 2013
Sunday, April 28, 2013
Oddaleikur Grindavíkur og Stjörnunnar í Röstinni í kvöld
Lyklar að sigri Grindvíkinga í oddaleiknum:
Lyklar að sigri Stjörnunar í oddaleiknum:
- Ráðast á teiginn eða keyra á körfuna. Stjarnan hefur átt í vandræðum með að stöðva árásir Grindavíkur á körfuna.
- Keyra í hraðaupphlaupin.
- Hægja á leiknum og nýta tímann í sókninni. Láta boltann ganga og finna opna skotið.
- Reyna að hægja á Jarrid Frye. Spila grimma einn-á-einn vörn á hann.
- Fá meira framlag af bekknum. Bekkurinn hefur aðeins skilað um 7-8 stigum að meðaltali í leik í þessari seríu.
- Siggi Þorsteins þarf að passa villurnar snemma í leiknum. Nærvera hans í teignum er gríðarlega mikilvæg fyrir Grindavík.
- Varnarfráköst. Bæði lið skjóta mikið utan að velli og þá sérstaklega fyrir utan þriggja stiga línuna. Það þarf því að passa sóknarfráköstin þar sem boltinn skoppar oft langt úr teignum.
- Vítanýtingin.
Lyklar að sigri Stjörnunar í oddaleiknum:
- Hreyfa sig án boltans. Það er auðvelt að dekka hreyfingarlausa sókn.
- Betri vörn gegn hraðaupphlaupum Grindavíkur.
- Fara á móti þriggja stiga skotum Grindavíkur.
- Keyra upp leikhraðann.
- Passa boltann og lágmarka tapaða bolta.
- Varnarfráköst. Bæði lið skjóta mikið utan að velli og þá sérstaklega fyrir utan þriggja stiga línuna. Það þarf því að passa sóknarfráköstin þar sem boltinn skoppar oft langt úr teignum.
- Stjarnan þarf að spila beittari varnarleik. Reyna að loka teignum og taka harðar á móti gegnumbrotum Grindvíkinga.
Subscribe to:
Comments (Atom)






