Thursday, June 28, 2012

Nýliðavalið er í kvöld

Nýliðavalið í NBA þetta árið verður í kvöld á miðnætti okkar tíma.  Flestir spá því að himnalengjan með þriggjametra vænghafið, Anthony Davis verði valinn nr. 1 af New Orleans Hornets.  Persónulega held ég að þessi drengur eigi ekki eftir að gera neinar rósir í NBA boltanum fyrir utan það að blokka nokkra bolta.  Held reyndar að sá sem flestir spá að fylgi honum fast á eftir í vali nr. 2, Michael Kidd Gilchrist muni standa sig heldur betur.  Verst bara að hann endar þá hjá skítaliði í Charlotte Bobcats.


En hvað veit ég?