Wednesday, July 25, 2012

Team USA ekki í sýnilegum vandræðum með Spán

Jonas Valanciunas stöffar á Pavel Ermolinski

Ísland var engin fyrirstaða fyrir sterku ólympíuliði Litháa í vináttuleik í gær. Ekki svosem furða þar sem litháíska liðið samanstendur af alla vega 3 ef ekki fleiri NBA leikmönnum.  Hér er einn þeirra, Toronto Raptors leikmaðurinn og sjöfetungurinn Jonas Valanciunas að troða all hressilega á kollinn á honum Pavel Ermolinski.


101-51 var niðurstaðan en fyrir okkur sem sjáum alltaf glasið hálffullt, verður það ekki að teljast afrek að halda þessu liði "bara" í 101 stigi?  Jus'sayin.

Saturday, July 14, 2012

Áhrif skóframleiðenda eru ómæld í NBA deildinni


Í vikunni sá ég tvít frá Doug Thonus sem er bloggari á Chicago Bulls Confidential blogginu, þar sem hann útilokaði skipti sem kæmu Dwight Howard til Chicago.  Ekki það að ég hafi verið að halda í mér andanum þar til D12 fer til Chicago, en það var hins vegar ástæðan sem vakti snögglega athygli mína.


Þar hafiði það! Adidas skó-risinn og spons-samningurinn hans við Dwight Howard eru áhrifabreyta í vali leikmannsins á vinnustað í framtíðinni.

Staðreyndin er hins vegar sú að Adidas eru nú þegar með skrilljóna-samning við Chicago Bulls leikmanninn Derrick Rose og hafa ekkert að gera við Dwight Howard í sama liði.  Einhvers staðar las ég líka að það er termination-klausa í samningnum hans ef hann fer í eitthvað af hinum "Adidas liðunum".

Howard gæti tapað eitthvað á bilinu 3-10 milljónum dollara við að semja við Chicago.  Maður hugsar þá, so what... Nike pikka hann upp áður en Adidas henda samningnum hans í tætarann.  Jú, mögulega en þar væri hann bara einn af einhverjum 5-10 leikmönnum sem fá fría skó og mæta annað slagið í photoshoot fyrir Nike.  Hjá Adidas er hann einn af tveimur aðalmönnunum.

Eitt sinn hélt ég að það væri heiðurinn að fá greitt fyrir að spila hina fögru íþrótt í bestu deild í heimi sem keyrði menn áfram... en það er orðið morgunljóst að Benjamin Franklin sálugi keyrir þessa deild áfram en ekki faðir körfuboltans, James Naismith.

Team USA léku sér að Dóminíska lýðveldinu

Friday, July 13, 2012

Public Enemy - I Shall Not Be Moved (Video)



"This is a test to see if this song & video can get 10% play of NGsInParis exposing the corporate takeover of hiphop"  - Chuck D
  

Wednesday, July 11, 2012