Showing posts with label Dominos Deildin. Show all posts
Showing posts with label Dominos Deildin. Show all posts

Saturday, April 6, 2013

Teitur Örlygsson: "Í körfubolta ræðst þetta oft á fráköstunum"




Sá þjálfari í Dominos deildinni sem er meira teknískur og metnaðarfyllri en Teitur Örlygsson er vandfundinn, ef hann er til. Hann og Snorri Arnaldsson aðstoðarþjálfari Stjörnunar undirbúa sína leikmenn með slíkum metnaði að annað eins er vandséð í efstu deild - og það er svo sannarlega að bera ávöxt.

Eins og svo oft áður hittir Teitur naglann á höfuðið, og nú með fráköstinn. Það sást í leik KR og Grindavíkur í DHL höllinni á fimmtudaginn þar sem KR gersamlega kjöldró meistarana í frákastabaráttunni. Sóknarfráköst eru einn mikilvægasti þáttur í sóknarleik liða og kemur ekki að óvörum að þau eru einn af fjórum þáttum í Four Factors mati á sóknarleik liða. Að því gefnu skipta varnarfráköst einnig miklu máli þar sem þeim liðum sem tekst að loka á sóknarfráköst andstæðinga sinna ætti að vera greið leið til sigurs í leikjum sínum.

Stjarnan gaf andstæðingum sínum 16 sóknarfráköst að meðaltali í deildarkeppni Dominos í vetur - langhæst allra liða. Meðaltal deildarinnar var 12,2. Í leik 1 gegn Snæfelli tapaði Stjarnan sóknarfrákasta baráttunni 11-0 en tapaði aðeins með einu stigi. Það eitt er að mínu mati næg vísbending um hvað Stjarnan þarf að gera til að vinna þetta einvígi.

Myndband frá Karfan.is

Wednesday, March 27, 2013

Stjarnan-Keflavík: Rýnt í tölurnar fyrir leik 3


Ég man seint eftir jafnmikilli fjölmiðlaumfjöllun og umtal um einn körfuboltaleik líkt og við höfum nú upplifað eftir leik 2 milli Keflavíkur og Stjörnunnar í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Dominos deildinni. Leikmenn að lemja hvorn annan, "floppa" og drulla yfir mann og annan á vellinum á meðan á leik stóð. Leikmaður og þjálfari í sínu hvoru liðinu fengust meira að segja til að orðhöggvast í fjölmiðlum. Þetta ætti ekki að hafa varið framhjá þeim sem hafa fylgst með Ruslinu á Facebook eða Twitter í vikunni.

En nóg af slíkri umfjöllun. Nú skulum við snúa okkur að því sem mestu máli skiptir: Tölfræði! Rennum yfir tölurnar í fyrstu tveimur leikjunum og getum okkur til um hvað þarf að gerast í þeim þriðja.

Leikur 1
Pace
ORgt
DRgt
Stjarnan
81,08
125,80
106,07
Keflavík
81,08
106,07
125,80
Leikur 2
Pace
ORgt
DRgt
Keflavík
88,86
112,54
97,91
Stjarnan
88,86
97,91
112,54

Leikhraði skiptir miklu máli í viðureignum þessara liða. Bæði lið vilja keyra upp hraðann en Stjörnunni gengur betur að spila hægari bolta en Keflavík. Leikhraði í sigurleikjum Stjörnunnar er 84,1 sókn en 86,0 sóknir í sigurleikjum Keflavíkur. Bæði lið eru mjög áþekk í tapleikjum sínum.

Stjarnan hafði stjórn á fyrsta leiknum, hélt leikhraðanum í 81 sókn og uppskar sigur. Leikur 2 hins vegar var í eign Keflavíkur með leikhraða í 88 sóknum sem er vel yfir meðaltali Stjörnunnar og akkúrat í þægindaramma Keflavíkur. Keflavík er með leikhraða að meðaltali 86,0 í sigurleikjum sínum á tímabilinu.

Varnargildi (DRgt) Stjörnunnar eru umtalsvert lægri í sigurleikjum liðsins en í tapleikjunum eða 98,6 á móti 117,9. Að því gefnu er liðið að vinna frekar í leikjum þar sem framtakssemi í vörn er meiri.

Fráköst eru mikilvæg fyrir Keflavík og er hlutfall eigin frákasta af fráköstum andstæðings í sigurleikjum liðsins 1,25 - sem þýðir að Keflavík tekur um fjórðungi fleiri frákasta en andstæðingurinn í sigurleikjum. Þetta hlutfall er ekki eins hátt hjá Stjörnunni.

Bæði lið eru mjög skilvirk í sókn með sóknargildi (ORgt) yfir meðallagi í deildinni. Bæði lið skora a.m.k. eitt stig að meðaltali í um helmingi sókna sinna, sem er yfir meðallagi.  Því er sóknarleikur ekki vandamál fyrir bæði liðið. 

Stjarnan þarf að ná stjórn á leikhraðanum og spila agaðan sóknarleik og herða upp vörnina. Keflavík þarf hins vegar að keyra upp hraðan og stíga grimmt úr í öllum fráköstum.

Líkindin eru hliðholl Stjörnunni í þessum leik en ég treysti mér ekki til að spá fyrir um úrslit hans. Spennan fyrir leikinn er orðin óbærileg og veltur þetta að mörgu leyti aðeins á því hvort liðið höndlar pressuna betur og fylgir því eftir sem þjálfararnir hafa lagt upp með.

Mynd fengin að láni frá Karfan.is

Friday, March 15, 2013

Tröllatroðsla frá Lorenzo Bradshaw í KFÍ

"Tyrone Bradshaw í KFÍ splæsti í flottustu troðslu sem ég hef séð á Íslandi á öllum mínum ferli sem leikmaður og áhugamaður. SHIT." - Kjartan A. Kjartansson, Stjörnunni.


Tuesday, February 19, 2013

Njarðlem Shake

Njarðvíkingar ríða á vaðið og eru fyrsta lið Dominos deildarinnar til að gefa frá sér Harlem Shake myndband. Marcus Van fer á kostum í vafasömum athöfnum með ljóninu.

Friday, February 8, 2013

Ný byrjun

Það var mikill óttablandinn spenningur og eftirvænting fyrir leik ÍR-inga gegn Skallagrími í gærkvöldi.  Spenna og eftirvænting í líkingu við það sem liðið upplifði árið 1994 þegar Herbert nokkur Arnarson snéri aftur í herbúðir ÍR-inga eftir háskólanám í Bandaríkjunum.

Eftir að Jón Arnar Ingvarsson sagði starfi sínu lausu sem þjálfari ÍR í síðustu viku var ljóst að liðið var komið að ákveðnum endapunkti. Botnsæti í Dominos deildinni var staðreynd og við blasti grimm fallbarátta. Staða sem ÍR-ingar eru ekki vanir. Varast skal að skella allri skuld vegna slakrar frammistöðu liðsins á þjálfarana eina. Leikmenn voru áhugalausir í síðustu leikjum fram að þessu og mikil deyfð yfir þeim. Kannski var þetta það sem þeir þurftu.  Ákveðin vatnsgusa í andlitið að vera komnir á botninn og þjálfari með margra ára reynslu sagt starfi sínu lausu vegna þess að hann getur ekki komið liðinu yfir þá andlegu deyfð sem ríkti.

Stjórn Kkd ÍR gerði dauðaleit að nýjum þjálfara og setti sér það að markmiði að ráða uppalinn ÍR-ing til verksins. Einhvern sem hafði spilað í Hellinum áður undir merkjum Íþróttafélags Reykjavíkur. Einhver sem naut þeirrar virðingar innan félagsins að hlustað yrði á það sem hann hefði að segja á æfingum og í leikjum.

Áhugi margra nafntogaðra fyrrverandi leikmanna liðsins var kannaður og var niðurstaðan vægast sagt heppileg fyrir þetta aldna stórveldi í íslenskum körfubolta. Herbert Arnarson var fenginn til að stýra liðinu það sem eftir lifði tímabils ásamt Steinari Arasyni. Herbert nýtur gríðarlegrar virðingar innan herbúða ÍR og er, ásamt Eiríki Önundarsyni, sá sem hefur náð hvað lengst af þeim sem leikið hafa með ÍR á seinni tímum. Herbert hefur það skap sem þarf til að rífa menn upp og reka þá áfram til góðra verka og þann karakter til að draga menn með sér til orrustu.

Strax og þetta var ljóst hóf að byggjast upp mikil eftirvænting meðan ÍR-inga. "Týndi sonurinn" snúinn aftur til heimahagana til að rífa liðið upp af botninum. Í áhorfendastúku Hertz hellisins mátti sjá andlit sem ekki höfðu sést þar í langan tíma. Allir eflaust að bíða eftir töfrunum sem menn upplifðu um árin 94-95.

Strax frá fyrstu mínútu leiks var ljóst að þessi tilraun Viðars Friðrikssonar og félaga í stjórn Kkd ÍR ætlaði að ganga upp.  Sóknin flæddi vel og vörnin hreyfanleg og menn töluðu saman. Allt annað lið mætt til leiks en það lið sem molnaði í sundur gegn ungu liði Njarðvíkur viku áður. Stórleikur Sveinbjörns Claessen stóð upp úr að mínu mati þar sem hann ekki aðeins skoraði 18 stig (60% eFG%), hirti 9 fráköst og gaf 5 stoðsendingar heldur hélt Páli Axel í aðeins 9 stigum og 4/12 nýtingu. Sveinbjörn reif niður 25% allra varnarfrákasta á meðan hann var inni á vellinum.

Skilvirkni sóknar var mjög mikil eða 133,19 stig skoruð á hverjar 100 sóknir og skilvirkni varnar
einnig eða 97,11 skoruð stig Skallagríms á hverjar 100 sóknir. Hraði leiksins (Pace) var ekki mikill eða 72,1.  ÍR-ingar töpuðu aðeins 4 boltum í öllum leiknum en fram að þessu hefur liðið verið með að meðaltali 13,6 tapaða bolta í leik.

Það eru vissulega skemmtilegir tímar framundan en áður en menn rífa upp kampavínið og fara að fagna
er rétt að vera með báðar fætur á jörðinni og átta sig á því að þetta var alger skyldusigur fyrir ÍR. Skallagrímur var lið sem ÍR einfaldlega ÁTTI að vinna á heimavelli, sér í lagi eftir að félagið hafði nýverið sent frá sér besta leikmanninn. Þetta var mjög sannfærandi sigur og skýr skilaboð til hinna liðanna að ÍR mun ekki kveðja úrvalsdeildina án þess að bíta hressilega frá sér.

Mynd: Heiða / Karfan.is

Monday, February 4, 2013

Keflavíkurhraðlestin fór hægt af stað

Það er ástæða fyrir því að meistaraflokkslið Keflavíkur er og hefur verið kallað "Keflavíkurhraðlestin". Liðið hefur hingað til alltaf spilað hraðan bolta og það er staðfest með því að meðal-Pace gildi liðsins er alltaf vel yfir meðaltali deildarinnar.

Á síðasta tímabili var það 84,8 (meðaltal deildarinnar 82,8) og það næsthæsta í deildinni. Á þessu tímabili er það hvorki meira né minna en 87,1 (meðaltal deildarinnar 83,1) og það hæsta í Dominos deildinni.

Ekki aðeins það að Keflavíkurhraðlestin vilji spila hratt - hún þarf að spila hratt.

Í upphafi tímabils var mikið rætt um lægð Keflavíkurliðsins. Ekkert gekk upp og met var sett í töpum í röð í upphafi tímabils.  Látum liggja milli hluta að fyrstu þrír leiki Keflavíkur í deildinni hafi verið gegn þeim liðum sem spáð var hvað bestum árangri á þessu tímabili og því erfiðir leiki - lítum heldur á mögulegan áhrifavald í þessu samhengi.  Leikhraði liðsins.

Keflavík spilaði alla þessa þrjá leiki um eða undir 80 í Pace.  Töluvert undir meðaltali deildarinnar.  Þar á eftir skelltu Keflvíkingar í rallýgírinn og þá fóru sigrarnir að rúlla inn eins og sjá má á myndinni hér að neðan.  Rauða línan sýnir hraða leiks Keflavíkurliðsins í þeim leikjum sem það hefur spilað í Dominos deildinni til þessa (vinstri ás), bláa línan er meðaltal deildarinnar í Pace (vinstri ás) og gula línan sýnir uppsafnaða sigra liðsins í gegnum tímabilið (hægri ás).


Sunday, January 13, 2013

KR-ingar leita upp á við



KR liðið hefur hægt og rólega verið að ná sér á strik eftir brösótta byrjun og hefur nú unnið fjóra leiki í röð, nú síðast nokkuð öruggur sigur á Fjölni. Eflaust hefur margt spilað inn í velgengni liðsins og ætla ég ekki að tíunda það frekar fyrir utan að nefna tvo leikmenn sem vaxið hefur ásmegin með hverjum leik sem líður í vetur, þá Martin Hermannsson og Kristófer Acox. Ég tel að áhrif leiks þeirra á með liðinu hafi haft ótvíræð áhrif á velgengni þess undanfarið.
Þessu til stuðnings ætla ég að sýna ykkur nokkra tölfræðiþætti þessara leikmanna, leik fyrir leik, og sýna þá leitni sem hún sýnir.

Martin Hermannsson hefur sýnt gríðarlegar framfarin í vetur sést það vel á stigaskori og framlagi hans hér að neðan. Rauða línan sýnir leitni þessarra gilda og þau eru öll upp á við.



Ein eftirtektarverð breyting á leik Martins er fjöldi stoðsendinga sem vaxið hefur mikið eins og sést hér að neðan.  En það segir ekki alla söguna. Ef skoðað er hlutfall stoðsendinga á móti töpuðum boltum (sem er góður mælikvarði á frammistöðu leikstjórnenda) sést að það hækkar sífellt.



Kristófer Acox hefur einnig sýnt miklar framfarir í vetur eins og sést hér að neðan stiga- og framlagstölfræði hans.



Það sem einna helst vekur athygli við þessa athugun er þróun í fjölda frákasta hjá honum milli leikja.


Það verður áhugavert að fylgjast með Martin, Kristófer og hinum KR-ingunum í vetur og spennandi að sjá hvort þeir standi undir þeim væntingum sem gerðar voru til þeirra í haust. Martin og Kristófer eru alla vega að leggja sitt af mörkum.

Varnarleikur ÍR í hnotskurn


Sunday, January 6, 2013

ÍR-ingar gefast upp í seinni hálfleik


Undanfarin ár hafa ÍR-ingar spilað bara nokkuð góðan bolta og haldið í flest af bestu liðum deildarinnar.... í svona 20 mínútur.   Alltaf virðast þeir mæta jafn dofnir og clueless í þriðja hluta í jöfnum leikjum, á meðan andstæðingarnir nota hálfleikinn til að kveikja upp baráttu og hungur til sigurs.  Þannig var þetta í það minnsta í dag þegar ÍR-ingar létu Stjörnuna slá sig út úr Powerade bikarnum -  í seinni hálfleik. Vissulega er Stjarnan með eitt besta lið deildarinnar og erfitt að sækja sigur í Ásgarðinn en þeir voru ekki að sýna sitt rétt andlit í fyrri hálfleik og Teitur hefur eflaust þrumað yfir sínum mönnum að pappíra á sér afturendann og fara að klára leikinn.  Sem þeir gerðu - mjög örugglega.

"Seinni hálfleiks syndrómið" hefur loðað lengi við Breiðhyltingana og því til stuðnings eru myndirnar hér að neðan sem sýna þróun nokkurra jafnra leikja á þessu tímabili sem ÍR hefði hæglega getað unnið hefði ekki verið fyrir fyrrnefndan kvilla.  

Stjarnan - ÍR (6. jan 2013)

Skallagrímur - ÍR (26. okt 2012)

Stjarnan - ÍR (9. nóv 2012)

ÍR - Fjölnir (6. des 2012)

Tindastóll - ÍR (13. des 2012)

Myndir frá Karfan.is og KKÍ

Dagur Kár smellir bözzer á ÍR


Michael Craion stöffar á ÍRinga


Lele Hardy á eldi

Er einhver hissa á því að hún hafi verið valin í úrvalslið fyrri umferðar?


Thursday, January 3, 2013

Úrvalslið fyrri umferðar Dominos deildar kvenna í tölum


Þarf engan að undra að úrvalslið fyrri umferðar Dominos deildar kvenna innihaldi 4 leikmenn frá tveimur efstu liðum deildarinnar, Keflavík og Snæfelli.  Tölfræði þessara leikmanna styður að mestu leyti við þetta val KKÍ en þó ekki öllu.  Taflan hér að neðan sýnir tölfræði þessara leikmanna og í hvaða sæti hver þeirra lendir í hverjum tölfræðilið.


Lele Hardy er í þriðja sæti deildarinnar yfir PER með 50,1 sem er gríðarlega hátt gildi. Crystal Smith hjá Grindavík og Britney Jones hjá Fjölni eru þó með hærri gildi eða 52,1 og 52,0. Það sem færir Hardy sæti í úrvalsliðinu er sú staðreynd að hún er nánast ein að halda Njarðvíkurliðinu frá fallsæti og gerir nánast allt í liðinu. Hún mokar niður tæpum helmingi allra þeirra frákasta sem í boði eru á meðan hún er inni á vellinum og það er ekki stuttur tími.

Sara Rún og Pálína eru að spila frábæran körfubolta það sem af er vetri og sitja í 6. og 7. sæti deildarinnar í PER, og Hildur Björg fylgir fast á eftir í 8. sæti.

Hildur Sigurðardóttir hins vegar er aðeins í 17. sæti allra leikmanna í PER og nokkrir íslenskir leikmenn fyrir ofan hana þar. Hildur er hins vegar einn allra besti leikstjórnandi deildarinnar og ljúga tölurnar engu um það. Hún er með 30,7% í AST% sem þýðir að yfir 30% af körfum liðsfélaga hennar (á meðan hún er á vellinum) koma eftir stoðsendingu frá henni og er hún í 5. sæti í deildinni í þessum þætti. Hildur er einnig með mjög gott hlutfall stoðsendinga á móti töpuðum boltum eða 1,686 eða 4. sæti í þeim tölfræðiþætti.  Þess má geta að þrír leikmenn Snæfells raða sér í 2.-4. sæti í þeim þætti:  Alda Leif, Marlow og Hildur.

Besti leikmaður deildarinnar, Pálína Gunnlaugsdóttir er hvergi að skora yfirburðargildi í þeim tölfræðiflokkum sem birtast í töflunni. Hún er stigahæst íslenskra leikmanna deildarinnar en í 5. sæti í heildina með 16,8 stig í leik. Hún spilar fantavörn og er fjórða hæst í stolnum boltum með 3,5 í leik.  Hún er klárlega mikilvægasti leikmaðurinn í langbesta liði deildarinnar og því vel að þessari nafngift komin.

Dugnaðarforkur Dominos deildarinnar var kjörin Helga Einarsdóttir í KR en tölurnar hennar rökstyðja það val því hún er í topp 8 í öllum frákasta-tölfræðiliðum og tekur niður um 28% allra frákasta á meðan hún er á vellinum.

Þjálfari ársins var nánast sjálfkjörinn Sigurður Ingimundarson með Keflavíkurliðið sem er 14-0 í deildinni og skorar hæst í Four Factors greiningu Ruslsins sem birt var fyrr í vikunni.  Keflavíkurliðið er ótvírætt besta lið deildarinnar þessa dagana og þess má geta að nýtnihlutfall (Usg%) leikmanna Keflavíkur er mjög jafnt skipt um 16-23% milli leikmanna.  Staðalfrávik í nýtni þeirra leikmanna sem spila meira en 5 mín í leik er aðeins 0,40.  Aðeins Snæfell kemst nærri Keflavík í þessum þætti með staðalfrávik 0,48.

Wednesday, January 2, 2013

Grindavík og Keflavík eru bestu liðin í Dominos deildum karla og kvenna


Ítarlega tölfræðigreiningu á Dominos deildum karla og kvenna er að finna í tenglunum hér til hægri og einnig neðst í þessari færslu.  Í stuttu máli er niðurstaða hennar sú að Grindavík er besta lið Dominos deildar karla og Keflavík besta lið Dominos deildar kvenna, miðað við Four Factors greiningu. Samkvæmt PER mælikvarðanum er Snæfellingurinn Jón "Nonni Mæju" Jónsson besti leikmaður fyrri hluta leiktíðarinnar í karlaboltanum en Crystal Smith er best í kvennaboltanum. Sara Rún Hinriksdóttir er best íslenskra kvenna í Dominos deildinni.

Dominos deild karla - Liðin
Dominos deild karla - Leikmenn
Dominos deild kvenna - Liðin
Dominos deild kvenna - Leikmenn

Wednesday, December 26, 2012

Spá eftir 16 umferðir í Dominos kvk skv. CGM

Keflavíkurstúlkur hafa verið ósigrandi á fyrri hluta tímabilsins og unnið alla af sínum 16 leikjum, en miðað við frávikin í leik þeirra (Stdev 12,27) spáir líkanið tapi í þremur leikjum á seinni hlutanum. KR rétt sleppur í úrslitakeppnina ef fer sem horfir.