Showing posts with label Rajon Rondo. Show all posts
Showing posts with label Rajon Rondo. Show all posts
Sunday, July 14, 2013
Thursday, November 29, 2012
Wednesday, October 31, 2012
Monday, June 4, 2012
Rajon Rondo spilar eins og enginn sé morgundagurinn
Ef þú hefur verið að fylgjast með Boston Celtics í þessari úrslitakeppni þá ætti það ekki að hafa farið framhjá þér hvað Rajon Rondo er fáránlega góður. Risaþrennan hans í leik 2 er nægur vitnisburður um þá staðreynd.
Tölurnar hans í þessari úrslitakeppni eru heldur ekki að kasta rýrð á frammistöðu hans það sem af er. Hann er að skora meira, frákasta meira, spila meira, skjóta betur og það sem mikilvægast er í hans hlutverki - hann er að passa boltann betur og tapa honum sjaldnar. Stoðsendingar á móti töpuðum boltum (Ast/TO) á nýliðnu tímabili voru nokkuð góðar eða um 3,2 sem flestir leikmenn yrðu bara nokkuð sáttir við. Þetta hlutfall hjá Rondo í úrslitakeppninni hins vegar tekur stökkbreytingum og gefum hann það sem af er keppninni 5,2 stoðsendingar á móti hverjum töpuðum bolta. Tölur sem eru bara eins fáránlegar og hugsast getur fyrir leikmann sem er kominn djúpt inn í undanúrslit keppninnar.
Mér datt aðeins John Stockton í hug sem mögulega gæti átt sambærilega frammistöðu í úrslitakeppninni. Þegar hann spilaði yfir 10 leiki í úrslitakeppninni var meðaltal hans 3,4 og hágildið 4,2.
Jeff Van Gundy og félagar á ESPN sjónvarpsstöðinni áttu skemmtilega samantekt á frammistöðu Rondo í leik 3. Hitt myndbandið sýnir hins vegar Rondo þræða nálaraugað með hnitmiðaðri sendingu á Paul Pierce.

| Mín | Stig | Frák | Stoð | Stl | Tap | Sk% | 3P% | V% | TS% | eFG% | Ast/TO | PER | |
| 2011-12 | 36,9 | 11,6 | 4,7 | 11,4 | 1,7 | 3,6 | 44,8% | 23,8% | 59,7% | 48,3% | 45,6% | 3,2 | 17,5 |
| Playoffs | 42,6 | 17,4 | 6,8 | 11,9 | 1,5 | 2,3 | 48,0% | 25,9% | 71,1% | 51,7% | 49,4% | 5,2 | 22,9 |
Mér datt aðeins John Stockton í hug sem mögulega gæti átt sambærilega frammistöðu í úrslitakeppninni. Þegar hann spilaði yfir 10 leiki í úrslitakeppninni var meðaltal hans 3,4 og hágildið 4,2.
Jeff Van Gundy og félagar á ESPN sjónvarpsstöðinni áttu skemmtilega samantekt á frammistöðu Rondo í leik 3. Hitt myndbandið sýnir hins vegar Rondo þræða nálaraugað með hnitmiðaðri sendingu á Paul Pierce.
Rajon Rondo segir sannleikann
Ekkert nema heilagur sannleikur þarna. Heat létu elliheimilið í Boston skilja sig eftir í rykinu í fyrri hálfleik á meðan þeir vældu í dómurum út af hinu og þessu. Læt það þó liggja milli hluta hvort sólstrandargæjarnir hafi haft eitthvað til síns máls.
Thursday, May 31, 2012
Rajon Rondo launaði Miami Heat gefin stökkskot
Er jump-shot Rondo kominn til að vera? Sá var í ruglinu í nótt. Spilaði allar 53 mínútur leiksins. Skaut 16/24 utan að velli og með 44 stig, 8 fráköst og 10 stoðsendingar. Þessi mynd frá NBA Íslandi segir meira en mörg orð. Ekki dugði það hins vegar til að tryggja sigurinn. Celtics hefur engan veginn tekist að nýta sér fjarveru Chris Bosh í þessum tveim leikjum og er maður farinn að efast um að þeir hafi nægt eldsneyti til að komast í úrslitin.
Monday, May 14, 2012
Sunday, November 20, 2011
Friday, October 14, 2011
Rondo The Magician
Tvennt við þetta myndband: Rajon Rondo kann að spila körfubolta og Kenneth "Manimal" Faried getur TROÐIÐ.
Labels:
Dunks,
Kenneth Faried,
Rajon Rondo,
RUGL,
Sendingar,
Sick,
Sýnikennsla
Saturday, September 10, 2011
Wednesday, June 29, 2011
Wednesday, May 4, 2011
Friday, March 25, 2011
Bannað að klára þetta, herra Rondo?
Vaddahell? Celtics töpuðu svo leiknum og sendu Bulls á toppinn í austrinu. Vel gert, Rajon.
Labels:
Fail,
Rajon Rondo,
WTF
Monday, February 14, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)