Í lok síðustu viku leystu Los Angeles Lakers Metta World Peace (MWP og áður þekktur sem Ron Artest) undan samningi hjá sér með ákvæði í kjarasamningi NBA leikmanna sem heitir "The Amnesty Clause". Sú regla leyfir liði að losa sig við leikmann og laun hans undan launaþakinu og refsiskattsmörkunum.
MWP tjáði sig hátt um það að hann hefði engan áhuga á að spila í NBA á næsta tímabili og ætlaði bara til Kína til að spila og þá mögulega fótbolta. Í gær kom það svo í ljós að hann hafði samið við New York Knicks fyrir næstu tvö ár fyrir skiptimynt.
Þessi snúningur var samsettur svo MWP gæti samið við það lið sem hann vildi fyrir lítin pening án þess að tapa því sem hann átti inni.
Ég ætla að gera tilraun til að útskýra hvernig.
Amnesty reglan virkar þannig að vilji lið losa sig við leikmann á þann hátt fer sá leikmaður á "waivers" sem kallað er. Það er ástand sem varir í tvo sólarhringa þar til leikmaðurinn losnar endanlega undan samningi við liðið sem sleppir honum.
Í millitíðinni geta hins vegar önnur lið tekið við samningnum og þurfa þá að bjóða að lágmarki það sem munar á milli heildarsamnings leikmanns og því sem er tryggt (e. guaranteed). Það lið sem býður hæstu upphæðina nær í leikmanninn og bjóði tvö lið sömu upphæðina hlýtur það lið sem er með verri árangur í deildinni vinninginn.
Þetta þýðir að slök lið hafa ótvíræðan forgang að leikmönnum sem leystir eru undan samningi á þennan hátt - en reyndir og þekktir leikmenn (e. veterans) hafa kannski ekki endilega áhuga á að leika með þannig liðum. Þess vegna lýsti MWP því yfir að hann hefði engan áhuga á að spila í deildinni áfram og var því að senda liðum deildarinnar þau skilaboð að hann vildi ekki að neitt lið tæki upp samninginn hans á þessu tveggja sólarhringa tímabili.
Um leið og "waiver" tímabilinu lauk tilkynntu MWP og NYK að samið hefði verið til tveggja ára um $1,6 milljónir, eða það sem Knicks áttu eftir af sinni Mini Mid-Level Exception (sem er ein af mörgum undanþágum sem lið fá til að sleppa við refsiskattinn).
...og hér kemur rúsínan í pylsuendanum: Los Angeles Lakers þurfa samt sem áður að greiða MWP þær $7,3 milljónir sem liðið skuldar honum fyrir næsta leiktímabil.
Hvers vegna? Jú, þegar lið losar sig við leikmann með Amnesty og annað lið tekur við honum þá losnar það við allar skuldbindingar við leikmanninn ef það tekur allan samninginn (e. full waiver claim) eða skuldar enn leikmanninum mismuninn af því sem hitt liðið býður (e. partial waiver claim) og því sem eftir er og tryggt af gamla samningnum. Ef leikmaðurinn hins vegar verður óskuldbundinn með lausan samning (e. unrestricted free agent) eftir tveggja sólarhringa tímabilið getur hann samið við hvaða lið sem er fyrir hvaða upphæð sem er AUK ÞESS að fá greitt það sem tryggt var af því sem eftir var að samningi hans við hitt liðið.
Flestir þekktir og reyndir leikmenn eins og MWP eru með allan samninginn tryggðan og því þurfa Lakers að greiða MWP það sem þeir sömdu um á sínum tíma.
Með þessari fléttu tókst Knicks að tryggja sér þjónustu MWP fyrir lítin pening og sleppa við refsiskatt af því auk þess sem MWP tryggir sér fína viðbót á samning sinn við Lakers.
Mögulegt er að þetta hafi verið gert með vitund stjórnenda Lakers þar sem það er nokkuð líklegt að eitthvað af neðri liðum deildarinnar með pláss undir þakinu hefði tekið að sér samning MWP, og Lakers sloppið við það sem þeir skulda honum. Lakers hafa hins vegar ekki kvartað yfir þessu fyrirkomulagi því ekki ólíklegt að þeir hafi gefið því blessun sína.
Lakers voru á vissan hátt nauðbeygðir til að losa sig við MWP en það allt hins vegar gert í góðu og allir sáttir. Mögulegt að þessi flétta sé ástæðan fyrir því, þó hún kosti Lakers dágóðan skilding.
Meira um kjarasamning NBA deildarinnar: Larry Coon's CBA FAQ
Showing posts with label Ron Artest. Show all posts
Showing posts with label Ron Artest. Show all posts
Tuesday, July 16, 2013
Wednesday, January 9, 2013
Wednesday, December 12, 2012
Vandræði í Englaborginni
Lakers hafa nú tapað 13 leikjum það sem af er þessu tímabili. Í 10 af þessum 13 tapleikjum hefur Kobe skorað yfir 30 stig. Lakers eru 1-10 þegar Kobe skorar yfir 30 stig.
Vörnin hjá Lakers er hreint skelfileg þrátt fyrir að vera með Kobe, Artest og Howard innanborðs, sem allir eru fastagestir í NBA All-Defence liðunum. Liðsvörnin og hjálparvörnin er engin.
Það hjálpar heldur ekki að vera með þjálfara sem undirbýr lið sitt í heilan hálftíma varnarlega fyrir leiki.... heilar 30 mínútur, Mike! C'mon.
Saturday, September 22, 2012
Friday, December 16, 2011
Þetta verður seint þreytt
"I'm probably gonna bring him off the bench," acknowledged Brown.HookUp: ESPN.com
Considering how World Peace is coming off a 2011 season disappointing enough to prompt some NBA analysts to wonder if the Lakers might use the new CBA's amnesty provision on him, the natural inclination would be to frame this decision as a demotion. But according to the coach and player, who've discussed the matter, it's actually a matter of strengthening the second unit while increasing World Peace's opportunities.
Tuesday, December 13, 2011
Bara til einn Metta World Peace
lSkyggnst inn í innstu skúmaskot huga Metta World Peace... Haaaaaahhhahahahah!
Labels:
Eðlilegt,
LOL,
Metta World Peace,
Pælingar,
Ron Artest,
Speki,
WTF
Monday, December 12, 2011
Bara til einn World Peace
"...and I should be amnessity or aminessity or whatever that thing is called."
Wednesday, November 23, 2011
Thursday, October 6, 2011
Friday, September 23, 2011
Tuesday, September 20, 2011
Ron Artest í Dancing With The Stars
Labels:
Ron Artest,
Viðbjóður,
WTF
Sunday, September 11, 2011
Friday, August 26, 2011
RonRon verður Metta World Peace
Eldflaugafræðingurinn Ron Artest er búinn að fá það í gegn að breyta nafninu sínu og mun frá og með deginum í dag heita Metta World Peace.
World Peace mun einnig breyta um númer hjá Lakers og verður númer 70 en það verður þriðja númerið hans á þremur árum hjá Lakers.
Um númerabreytinguna hafði World Peace þetta að segja: "I’m changing it to 70 because it’s like something to do with the universe." Þá vitum við það.
Það sem er næst hjá Metta World Peace kallinum er að spila í Englandi þar sem hann fær 2500 dollara á mánuði.
Þess má geta að á síðasta tímabili fékk Ron Artest rúma 2600 dollara á MÍNÚTU hjá Lakers.
Heimsfriðurinn er dýr.
Friday, June 24, 2011
Ron Artest vill breyta nafni sínu í Metta World Peace
Nei, þetta er ekki grín. Hann hefur nú þegar sent inn umsóknina til dómsstóla Los Angeles borgar. Mitch Kupchak hjá Lakers er samt bara nokkuð sáttur við það...
Thursday, May 5, 2011
Ron Artest tryggir sér frí í næsta leik í Dallas
Hvað getur hann gert að því þó Barea sé svona lítill... meina komm on.
Sunday, March 27, 2011
Shannon Brown dagsins
Fáránlegt...
Ron Artest getur þetta líka... eiginlega.
Ron Artest getur þetta líka... eiginlega.
Labels:
Dunks,
Ron Artest,
RUGL,
Shannon Brown
Wednesday, March 23, 2011
Ron Ron stöffar á Suns
Gamli! Kyssir svo byssurnar eins og hver annar fagmaður.
Labels:
Dunks,
Ron Artest,
Vel gert
Monday, March 7, 2011
Passaðu kaffið þitt þegar þú ert á Lakers leikjum
Ron Artest gæti komið fljúgandi í grillið á þér...
Labels:
FTW,
LOL,
Ron Artest
Thursday, February 10, 2011
Melo til Lakers?
Carmelo Anthony virðist vera með alla NBA deildina í gíslingu þessa dagana því fátt annað heyrist frá fréttamönnum sem fylgjast með henni annað en til hvaða liða hann geti mögulega farið. New Jersey Nets, eftir þónokkrar tilraunir, gáfu nýverið skít í kapphlaupið um leikmanninn knáa og virtist þá lítið vera eftir nema New York Knicks og einhver smá smuga á að hann endi hjá Chicago Bulls.
Í síðustu viku bárust fréttir frá Los Angeles að stjórnendur Lakers væru að íhuga breytingar á leikmannalista sínum. Sífellt háværari raddir heyrast nú af viðræðum milli Nuggets og Lakers um skipti á Carmelo Anthony og Andrew Bynum. Díll sem gæti launalega vel gengið upp ef Lakers ákveða að loka á The Andrew Bynum Project. Melo er góður fengur fyrir hvaða lið sem er sóknarlega en Lakers hafa átt í vandræðum í vörninni undanfarið og ekki er ég að sjá Anthony vera sterkan póst þar. Einnig hefur heyrst af viðræðum milli Lakers og Bobcats um skipti sem myndu senda Artest til Charlotte fyrir annað hvort Stephen Jackson eða Gerald Wallace, en útlit er fyrir að ekkert verði af því þar sem Artest hefur lítinn áhuga á að fara til Charlotte.
En klukkan tifar og styttist hratt í að lokafresturinn til leikmannaskipta renni út þann 24. febrúar nk. Ekkert lið virðist geta reitt af hendi það sem Nuggets eru að sækjast eftir, nema þá einna helst Knicks. Þeir geta látið frá sér draft pick sem Nuggets eru á eftir fyrir nýja uppbyggingu á liðinu, en vilja síður láta af hendi Danilo Gallinari eða nýliðan Landry Fields sem eru á óskalista Nuggets. Bulls hafa lítið annað að bjóða en Luol Deng, einhverja pappakassa og skiptimynt, en taka það ekki í mál að láta frá sér Joakim Noah sem Nuggets hafa farið fram á.
Samkvæmt spekingum vestan hafs virðast allir möguleikar vera jafn líklegir eins og staðan er í dag. Jafnvel að hann verði einfaldlega um kyrrt þar til tímabilinu lýkur og semji við nýtt lið í sumar. Ég veit alla vega að ég verð því feginn þegar lausn kemst á þetta mál því þessi sápuópera hefur verið hin versta - líkt og afgreiðsla ónefnds leikmanns á sínum högum sl. sumar.
Monday, January 17, 2011
Terror in Tinsel Town
Enn eitt dómgæsluslysið í NBA deildinni. Þetta er einhver hlægilegasta tilraun til dómgæslu sem ég er augum borið. Fjórir leikmenn fjúka í sturtu fyrir atvik sem varla réttlætir tæknivillu. Odom og Davis með sitt hvora tæknivilluna hefði verið ásættanlegt en þeir allir í sturtu er bara hreinlega hlægilegt.
Subscribe to:
Posts (Atom)




