Monday, March 18, 2013
Bruce Bowen er mesti drullusokkur sem spilað hefur í NBA deildinni
Varnartilburðir Dahntay Jones á Kobe Bryant um daginn koma þráðbeint upp úr kokkabókum Bruce Bowen.
Sunday, March 10, 2013
Saturday, March 2, 2013
Friday, February 1, 2013
Thursday, December 27, 2012
Sunday, October 2, 2011
Tepokinn
Tuesday, July 19, 2011
Andrew Bynum leggur í fatlaðra stæði
Friday, July 1, 2011
Vel gert LeBron James
Enn og aftur er 'Bron ekki að hitta sjitt undir svona mikilli pressu. 4th quarter anyone?
Monday, March 28, 2011
Carmelo Anthony Quote Machine
"We're going to try to figure it out as a team and you know when it happens them times will be fun. Basketball will be fun again. We won't have to worry about losing eight out of nine, or seven out of eight, or something like that," he said. "You know everybody is going to be smiling again and be happy. Right now, you know is hard to smile right now when you're losing games, I can tell you that."
"For the most part, these are teams we should be beating," Anthony said. "We talk about that among each other — that some of these teams shouldn't even be on the court with us. But they're winning games and it's just something we have to figure out."
Monday, February 14, 2011
Friday, February 11, 2011
Mín verður minnst sem?
Tuesday, February 8, 2011
LeBron James veit hvað skiptir mestu máli
Dómararnir voru þó ekki alveg vissir í sinni sök og vildu fá að sjá brotið í endursýningu á skjá - rétt skal vera rétt. LeBron James hins vegar var ekki alveg að nenna að bíða eftir því þeir skoðuðu þetta allt saman aftur til að fá réttan dóm. Hvers vegna?
“I got a Super Bowl party to go to man, c’mon.”Vel gert, 'Bron.
HookUp: NBC Sports & Brian Windhorst
Friday, February 4, 2011
Vilja New York Knicks ekki verða gott körfuboltalið?
Er James Dolan einn mesti bjáni í heiminum eða þjáist hann af alvarlegu skammtímaminni? Hefur það farið framhjá honum að nánast allt sem Isiah Thomas hefur gert síðan hann hætti að spila körfubolta hefur farið illa?
Stiklum á stóru á ferli hans eftir að leikmannaferli hans lauk:
1994: Tók við sem varaforseti Toronto Raptors. Fór þar í fússi eftir að tilboði hans í liðið var hafnað.
1998: Keypti CBA deildina og keyrði hana í gjaldþrot á 2 árum. Fram til þessa má segja að CBA hafi gegnt svipuðu hlutverki og D-league þjónar í dag. Þökk sé Isiah að stærstum hluta er hún einungis ein af fjölmörgum minni deildum í Bandaríkjunum í dag.
2000: Ráðinn til NBC sem lýsandi á NBA leikjum. Entist 3 mánuði í starfi.
2000: Ráðinn sem þjálfari Indiana Pacers. Tók við góðu búi af Larry Bird en náði ekki að fylgja því eftir sem hann hafði byggt upp. Þjálfaði liðið til ársins 2003 þegar hann var rekinn eftir að Pacers liðið sem hafði endað í 3. sæti austursins tapaði fyrir liðinu í 6. sæti, Boston Celtics, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar það árið.
2003: Ráðinn sem general manager hjá New York Knicks. Sankaði að sér hörmulegum samningum í flestum tilvikum hjá útbrunnum leikmönnum. Afrekaði það að gera New York Knicks að því liði sem borgaði yfirburðar hæstu launin í deildinni í mörg ár og á sama tíma gat liðið ekki blautan. Árið 2006 rak hann Larry Brown sem þjálfara og tók sjálfur við með hörmulegum árangri. Hrökklaðist svo úr starfi árið 2007 bókstaflega með allt niðrum sig og þar á meðal kæru fyrir kynferðislega áreitni á bakinu.

Einmitt þegar allt stefnir í að New York verði aftur lið sem keppir um NBA-titilinn fara svona orðrómar af stað. Þeir sem voru farnir að kætast yfir að Carmelo Anthony sé væntanleg að ganga til liðs við þá í sumar og svo hugsanlega Chris Paul árið 2012 ættu að reyna að ná jarðsambandi aftur. Ef Isiah verður ráðinn aftur væri álíka gáfuleg ákvörðun og þegar ríkisstjórnin ákvað að gefa Björgúlfi Guðmundssyni Landsbankann árið 2003.
P.s. þetta er í síðasta skiptið sem ég blanda pólitík inn í pistil hjá mér.


