Showing posts with label Utah Jazz. Show all posts
Showing posts with label Utah Jazz. Show all posts

Monday, March 5, 2012

Ekki svo klötsj




Hvað er að gerast í hausnum á LeBron James þessa dagana?! Fyrst endirinn á Stjörnuleiknum og nú þetta?! Gott og blessað að maðurinn sé að koma félögum sínum með í leikinn en öllu má nú ofgera.  Ákvörðunartaka hans á lokasekúndum leiks Miami og Utah um helgina er hreint með ólíkindum.

Eftir að Devin Harris hafði komið Utah einu stigi yfir með three-point-play með rúmlega 4 sekúndur eftir er King James kominn með boltann efst á lyklinum.  Allir á jörðinni búast við því að maðurinn ráðist á körfuna eða takið skotið til að klára leikinn.  Heldur betur ekki.  Gerir nákvæmlega það sem (frábær) vörnin hjá Utah Jazz vill að hann geri... gefi boltann frá sér.  Og hvern gefur hann á?  Nú, engan annan en stórskyttuna Udonis Haslem sem fleygir upp múrsteini.

Haslem er vægast sagt slakur kostur á þessu augnabliki með 40% nýtingu það sem af er þessu tímabili.  Hann er einnig með 34% eFG nýtingu í stökkskotum utan teigs í vetur.  Clutch tölfræðin hans er heldur ekki upp á marga fiska en hann er með 25% eFG nýtingu við þær aðstæður.  Tölfræði fengin frá 82games.com.

Skoðum aðeins möguleikana sem standa fyrir LeBron og Heat á þessu augnabliki:
  1. Ráðast á körfuna, taka skotið, fá villu eða soga að sér alla varnarmenn liðsins og finna þá einhvern opinn mann nær körfunni til að klára dæmið.
  2. Battier er opinn í horninu augnabliki síðar.
  3. Wade köttar eftir endalínunni með Gordon Hayward á sér sem gæti í besta falli brotið á honum, fengi Wade boltann undir körfunni.
  4. Chalmers er galopinn uppi eftir að Harris fer á móti Haslem í skotinu.
Slappt leikskipulag og enn slakari framkvæmd á ögurstundu hjá LeBron James og félögum í Miami Heat.  Þetta, dömur mínar og herrar, er ástæðan fyrir því að þessi ótrúlegi íþróttamaður er ekki enn búinn að landa titli fyrir sitt lið.  Áður fyrr hafði hann enga menn til að hjálpa sér og þurfti því að gera allt sjálfur, en nú þegar hann hefur nóg af hjálparkokkum er pressan orðin of mikil að hann geti höndlað hana.

Wednesday, April 6, 2011

Hendurnar á Kobe klúðra leiknum gegn Utah

Utah endaði 8 leikja taphrinu með því að sigra Lakers í Staples Center.  Kobe klúðraði ekki leiknum... heldur hendurnar á honum.

Ég verð samt að hrósa hvíta stráknum fyrir vörnina sem hann spilaði á Kobe í þessum leik og þá sérstaklega í þarna í lokin.  Ég hef trú á Gordon Hayward.




Wednesday, February 23, 2011

Deron Williams til Nets!!


Woah!

Þetta kom eins og þruma úr heiðskýru.

Utah Jazz eru búnir að samþykkja að senda D-Will til Nets fyrir Derrick Favors, Devin Harris og tvo valrétti.


ESPN

Yahoo

Uppfært:
Heimildarmenn úr röðum D-Will segja að hann sé allt annað en sáttur við þessi skipti og hann hafði ekki hugmynd um þetta fyrr en það var hringt í hann í morgun.

Friday, February 11, 2011

Mín verður minnst sem?


a) Gaurinn sem Jerry Sloan gafst uppá
b) Ástæða þess að Jerry Sloan hætti sem head coach eftir 23 ÁR !!! hjá Utah Jazz
c) Að segja í Inside the NBA að markmið sitt sem leikmaður væri að komast í All-Star leikinn (Tók hann 4 ár). Minntist ekkert á að vinna titil með liðinu sínu.

Sjálfur ber ég tilfinningar til Utah Jazz og finnst leiðinlegt að D-Will komist upp með þetta. Fyrir mér er Jerry Sloan andlit þessa liðs og mun þessi vitleysa endanlega slíta mín tengsl við þetta lið.

D-Will verður aldrei neitt nema þriðji besti PG í þessari deild og núna búinn að bæta við sig þessum lúsera stimpli.

Ruslið þakkar Jerry Sloan fyrir öll þessi ár, öll pick'n'roll-in og klassa stjórnun sem sést of sjaldan í NBA deildinni.


Thursday, February 10, 2011

Jerry Sloan hættur með Utah Jazz

Team Deron eða Team Sloan?

Nýjustu fregnir eru heldur óvæntar.

Jerry Sloan er hættur sem þjálfari Utah Jazz.

Aðeins viku eftir að hafa samþykkt að framlengja samning sinn við Utah tilkynnti Sloan að hann væri hættur.

Samkvæmt einhverjum miðlum er ástæðan sú að hann og Deron Williams lentu í rifrildi í hálfleik gegn Chicago Bulls og það hafi endanlega fyllt mælinn hjá Sloan sem er búinn að vera í 23 ár hjá Utah Jazz.

Samband þeirra er búið að versna með hverri vikunni og var orðið það slæmt að annar þeirra varð að víkja.

Sloan var einfaldlega kominn með nóg af því að félagið hlustaði meira á Deron en sig.

Hvað ætli Utah aðdáendur segi við þessu? Taka þeir hlið Sloan eða Deron?

NBA deildin mun því sjá á eftir Jerry Sloan, Larry Brown og Phil Jackson eftir tímabilið.