Thursday, June 30, 2011
Wednesday, June 29, 2011
LeBron James Highlights 2010-11
Labels:
Dunks,
LeBron James,
RUGL
Tuesday, June 28, 2011
Kyrie Irving getur spilað bolta
Það er ástæða fyrir því að þessi drengur var valinn nr. 1 í nýliðavalinu um daginn...
Monday, June 27, 2011
Friday, June 24, 2011
NBA nýliðavalið 2011
Ekki kannski það allra besta NBA draft sögunnar (það er til tölfræði sem styður það) en engu að síður er alltaf spennandi að fylgjast með hvar menn enda. Fyrstu 15 nýliðarnir sem valdir voru eru taldir upp hér að neðan:
- Cleveland Cavaliers - Kyrie Irving
Enginn vissi hvað Cavs myndu velja í fyrsta valrétti. Ekki einu sinni hann sjálfur. Þetta er samt sá leikmaður sem nánast allir höfðu spáð að færi fyrstur. Öflugur bakvörður, sem hefur farið óleynt með aðdáun sína á LeBron James - sem hefur vakið pirring í Cleveland borg. - Minnesota Timberwolves - Derrick Williams
Sá nýliði sem sérfræðingar segja að sé hvað best útbúinn fyrir NBA bolta strax. Wolves verða með spennandi lið næsta vetur með Williams og Love í framlínunni og Rubio í point. - Utah Jazz - Enes Kanter
Eru Jazz að finna sér upgrade á Mehmed Okur? - Cleveland Cavaliers - Tristan Thompson
Frákastari og blokkari. Cavs þurfa alla hjálp sem býðst. - Toronto Raptors - Jonas Valanciunas
Gríðarlega hreyfanlegur og snöggur sjö feta center. Gallinn er bara sá að Raptors gætu þurft að bíða eftir honum í 1-2 ár, en spekingarnir segja það vel þess virði. - Washington Wizards - Jan Vesely
207 cm hvít sleggja frá Tékklandi sem spilar hátt yfir hringnum. Spekingar kalla hann næsta Andrei Kirilenko en við skulum nú vona að hann afsanni þá kenningu - hans vegna. - Sacramento Kings (sendur til Charlotte Bobcats) - Bismack Biyombo
Mest hæpaði nýliðinn í draftinu. 19 ára gutti frá Kongó sem datt inn í nýliðavalið frá Spáni - öllum að óvörum. 205 cm hár með freakish 224 cm vænghaf. Blokkar allt sem fyrir honum verður og hefur lofað okkur að hann verði frákastahæstur í deildinni á sínu fyrsta ári. Er hins vegar alveg týndur í sókn. Michael Jordan og Bobcats taka stóra sjensinn með þessu vali og vona ég að það verði þess virði. MJ hefur ekki gott track record í vali á nýliðum... hmmm Adam Morrison og Kwame Brown anyone? - Detroit Pistons - Brandon Knight
Öflug skytta segja spekingarnir. - Charlotte Bobcats - Kemba Walker
Ég hreinlega skil ekki hvers vegna þess drengur endaði í 9. sæti. Var magnaður í liði UConn í ferð þeirra alla leið í NCAA titilinn og er fæddur sigurvegari - að eigin sögn. - Milwaukee Bucks (sendur til Sacramento Kings) - Jimmer Fredette
Stigahæsti leikmaður háskólaboltans. Getur skorað nánast að vild en á víst ekki gramm af varnarleik í sér. Held hins vegar að Paul Westphal þjálfari Kings hafi ekki miklar áhyggjur af því þar sem vörn er eitthvað sem menn smyrja oná brauð í Sacramento. - Golden State Warriors - Klay Thompson
Sonur Mychal Thompson sem lék í NBA deildinni fyrir löngu síðan. Mögnuð skytta segja spekingarnir. - Utah Jazz - Alec Burks
Þekki þennan gaur ekki neitt. - Phoenix Suns - Markieff Morris
Annar tvíburanna frá Kansas háskólanum. Sterkur strákur með góðan fundamental leik. - Houston Rockets - Marcus Morris
Sjá nr. 13... þeir eru beisiklý nákvæmlega eins þessir bræður. - Indiana Pacers (sendur til San Antonio Spurs) - Kawhi Leonard
Spurs sendu George Hill til Indiana fyrir þennan dreng og þá hlýtur bara að vera eitthvað varið í hann. Frákastari með fáránlega stórar hendur.
Ron Artest vill breyta nafni sínu í Metta World Peace
Nei, þetta er ekki grín. Hann hefur nú þegar sent inn umsóknina til dómsstóla Los Angeles borgar. Mitch Kupchak hjá Lakers er samt bara nokkuð sáttur við það...
Thursday, June 23, 2011
75 troðslur í röð
Þetta er hægt þegar þú ert 208 cm á hæð og með 224 cm vænghaf...
Labels:
Bismack Biyombo,
Dunks,
Nýliðar,
RUGL
Wednesday, June 22, 2011
Fashionistas
Dwyane Wade og Carmelo Anthony kíktu á Fashion Week í Mílanó... no homo.
Labels:
Carmelo Anthony,
Dwyane Wade,
Fesjon,
No Homo,
WTF
Tuesday, June 21, 2011
Monday, June 20, 2011
Friday, June 17, 2011
Næsti Ben Wallace?
Þessi gutti segist ætla leiða NBA deildina í fráköstum og vörðum skotum á næsta tímabili. Hann var ómyrkur í máli í viðtali við Scott Howard-Cooper hjá NBA.com:
So, do you believe you will lead the NBA in blocks?
- "I do."
Will you lead the NBA in blocks?
- "Yes."
Can you lead the NBA in rebounding?
- "Yes, I will"
You will lead the NBA in rebounding?
- "Yes. Of course. Hundred percent.
Oooookey...
HookUp: NBA.com
Emmcee á Twitter: @Emmcee23
Lygileg +/- tölfræði úrslitaseríunnar
Kidd +42 | Chalmers +14 |
Nowitzki +40 | Howard +6 |
Chandler +30 | House +2 |
Marion +28 | Haslem -2 |
Terry +22 | Wade -6 |
Cardinal +3 | Bosh -7 |
Mahinmi -4 | Bibby -10 |
Stojakovic -9 | Miller -11 |
Haywood -11 | Anthony -20 |
Barea -24 | James -36 |
Stevenson -31 |
Það sem vekur athygli við þessa tölfræði er óvænt besta +/- gildi Jason Kidd sem fór framúr Nowitzki eftir síðasta leikinn, eflaust þar sem Þjóðverjinn var að spila frekar illa framan af en Dallas liðið samt sem áður að spila góðan leik. Barea með furðulega lágt gildi, líklega vegna þess að hann var inn á vellinum oft á meðan Dirk var utanvallar. Chandler með frábæra seríu og er ég verulega farinn að efast um stjórnunarhæfileika Michael Jordan utan vallar þar sem Charlotte Bobcats fengu ekkert út úr Chandler á þeim tíma sem hann var þar og létu hann svo fyrir slikk.
Jú, þarna höfum við það skjalfest... LeBron James hvarf í lok seríunnar. -11 og -24 frammistaða síðstu tveggja leikjanna vegur þó þyngst þarna. Mario Chalmers átti góða seríu eins og sést og tók byrjunarliðssæti Mike Bibby þegar á leið þar sem hann gat ekki blautan. Kemur ekki á óvart að Pat Riley hafi boðið honum framlengingu.
Emmcee á Twitter: @Emmcee23
Thursday, June 16, 2011
Wednesday, June 15, 2011
Tuesday, June 14, 2011
Monday, June 13, 2011
Friday, June 10, 2011
Friday, June 3, 2011
Wednesday, June 1, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)