Wednesday, August 31, 2011

35th Hour With Kevin Durant Trailer



Melo - Goodman leikurinn

Einvígi milli Kevin Durant (59 stig) og LeBron James (32 stig). Carmelo Anthony með 27 stig og Chris Paul með 17. Lið Melo endaði með sigurinn 149-141. Smergjaður varnarleikur.  Meira á ESPN.com.



Monday, August 29, 2011

Shaq í BEAST MODE

Það má einfaldlega ekki gleymast hversu mikið genatískt viðundur hann Shaquille O'Neal var á hátindi ferils síns. Enginn í deildinni stóðst samanburð hvað styrkleika og kraft varðar.  Það sem Shaq skorti í vítaskotum og djömperum bætti hann margfalt fyrir með trölltroðslum sem þessum.



Robinson hefði betur hlegið minna því tveimur árum síðar lenti hann í þessari...




Dirk Nowitzki æfir með þýska landsliðinu

EM byrjar á miðvikudaginn...



CP3 on the M.I.C.

WTF?!


KO


Friday, August 26, 2011

RonRon verður Metta World Peace





Eldflaugafræðingurinn Ron Artest er búinn að fá það í gegn að breyta nafninu sínu og mun frá og með deginum í dag heita Metta World Peace.

World Peace mun einnig breyta um númer hjá Lakers og verður númer 70 en það verður þriðja númerið hans á þremur árum hjá Lakers.

Um númerabreytinguna hafði World Peace þetta að segja: "I’m changing it to 70 because it’s like something to do with the universe." Þá vitum við það.

Það sem er næst hjá Metta World Peace kallinum er að spila í Englandi þar sem hann fær 2500 dollara á mánuði.

Þess má geta að á síðasta tímabili fékk Ron Artest rúma 2600 dollara á MÍNÚTU hjá Lakers.

Heimsfriðurinn er dýr.