Sunday, March 31, 2013
Dirk Nowitzki sá einn um að klára Bulls um daginn
Njótið hans á meðan það er í boði...
Labels:
Dirk Nowitzki,
Drama,
FTW,
Mix,
Snillingur,
Vel gert
Friday, March 29, 2013
Wednesday, March 27, 2013
Stjarnan-Keflavík: Rýnt í tölurnar fyrir leik 3
En nóg af slíkri umfjöllun. Nú skulum við snúa okkur að því sem mestu máli skiptir: Tölfræði! Rennum yfir tölurnar í fyrstu tveimur leikjunum og getum okkur til um hvað þarf að gerast í þeim þriðja.
Leikur 1 |
Pace
|
ORgt
|
DRgt
|
Stjarnan |
81,08
|
125,80
|
106,07
|
Keflavík |
81,08
|
106,07
|
125,80
|
Leikur 2 |
Pace
|
ORgt
|
DRgt
|
Keflavík |
88,86
|
112,54
|
97,91
|
Stjarnan |
88,86
|
97,91
|
112,54
|
Leikhraði skiptir miklu máli í viðureignum þessara liða. Bæði lið vilja keyra upp hraðann en Stjörnunni gengur betur að spila hægari bolta en Keflavík. Leikhraði í sigurleikjum Stjörnunnar er 84,1 sókn en 86,0 sóknir í sigurleikjum Keflavíkur. Bæði lið eru mjög áþekk í tapleikjum sínum.
Stjarnan hafði stjórn á fyrsta leiknum, hélt leikhraðanum í 81 sókn og uppskar sigur. Leikur 2 hins vegar var í eign Keflavíkur með leikhraða í 88 sóknum sem er vel yfir meðaltali Stjörnunnar og akkúrat í þægindaramma Keflavíkur. Keflavík er með leikhraða að meðaltali 86,0 í sigurleikjum sínum á tímabilinu.
Varnargildi (DRgt) Stjörnunnar eru umtalsvert lægri í sigurleikjum liðsins en í tapleikjunum eða 98,6 á móti 117,9. Að því gefnu er liðið að vinna frekar í leikjum þar sem framtakssemi í vörn er meiri.
Fráköst eru mikilvæg fyrir Keflavík og er hlutfall eigin frákasta af fráköstum andstæðings í sigurleikjum liðsins 1,25 - sem þýðir að Keflavík tekur um fjórðungi fleiri frákasta en andstæðingurinn í sigurleikjum. Þetta hlutfall er ekki eins hátt hjá Stjörnunni.
Bæði lið eru mjög skilvirk í sókn með sóknargildi (ORgt) yfir meðallagi í deildinni. Bæði lið skora a.m.k. eitt stig að meðaltali í um helmingi sókna sinna, sem er yfir meðallagi. Því er sóknarleikur ekki vandamál fyrir bæði liðið.
Stjarnan þarf að ná stjórn á leikhraðanum og spila agaðan sóknarleik og herða upp vörnina. Keflavík þarf hins vegar að keyra upp hraðan og stíga grimmt úr í öllum fráköstum.
Líkindin eru hliðholl Stjörnunni í þessum leik en ég treysti mér ekki til að spá fyrir um úrslit hans. Spennan fyrir leikinn er orðin óbærileg og veltur þetta að mörgu leyti aðeins á því hvort liðið höndlar pressuna betur og fylgir því eftir sem þjálfararnir hafa lagt upp með.
Mynd fengin að láni frá Karfan.is
Tuesday, March 26, 2013
Sunday, March 24, 2013
Saturday, March 23, 2013
Larry Sanders hlýtur að vera treggáfaðasta kvikindi á jarðkinglunni
3 brottvísanir á 10 dögum... þetta hlýtur að vera eitthvað met.
Thursday, March 21, 2013
Stórkostleg endurkoma Miami Heat gegn Cleveland Cavaliers
24 leikir í röð. Heat klóra sig upp úr 27 stiga holu með LeBron James í broddi fylkingar.
Via @MaxaMillion711
Via @MaxaMillion711
Tuesday, March 19, 2013
Dómarar NBA deildarinnar drulla upp á bak
Dómarar mega ekki endurskoða atburðinn hafi þeir ekki dæmt neitt. Hafi þeir dæmt körfuna ólöglega mega þeir fara að skjánum til að ganga úr skugga um hvort dómurinn hafi verið réttur. Ekkert dæmt nema karfa góð í þessu tilfelli og þá mega þeir ekki skoða þetta aftur á skjánum.
Boltinn er að hluta til innan súlunnar sem ímynduð er frá hringnum eins og myndin hér að neðan sýnir.
Réttur dómur eftir leiðréttingu, en aðgerðir dómara hins vegar ekki samkvæmt reglubókinni.
LeBron James aflífar Jason Terry
Þetta var ekki taunt... hann var bara að tékka hvort Terry væri ekki örugglega enn að draga andann.
Labels:
Diss.is,
Dunks,
Facial,
Jason Terry,
LeBron James,
Tepokinn
Monday, March 18, 2013
Bruce Bowen er mesti drullusokkur sem spilað hefur í NBA deildinni
...en jafnframt hrikalega góður varnarmaður.
Varnartilburðir Dahntay Jones á Kobe Bryant um daginn koma þráðbeint upp úr kokkabókum Bruce Bowen.
Varnartilburðir Dahntay Jones á Kobe Bryant um daginn koma þráðbeint upp úr kokkabókum Bruce Bowen.
Sunday, March 17, 2013
Ein iðnaðartroðsla frá Wilson Chandler
Þessi er yfir alla Memphis vörnina...
Labels:
Dunks,
No D,
Wilson Chandler
Marc Gasol hinn úrræðagóði
Missir af sér skóinn í sókn... notar svo skóinn í vörninn á eftir til að slá boltann úr höndunum á Derrick Favors. Sannkallað mad shoe game.
Friday, March 15, 2013
Tröllatroðsla frá Lorenzo Bradshaw í KFÍ
"Tyrone Bradshaw í KFÍ splæsti í flottustu troðslu sem ég hef séð á Íslandi á öllum mínum ferli sem leikmaður og áhugamaður. SHIT." - Kjartan A. Kjartansson, Stjörnunni.
Labels:
Dominos Deildin,
Dunks,
RUGL
Thursday, March 14, 2013
Wednesday, March 13, 2013
Monday, March 11, 2013
Troðsla ársins komin í hús
DeAndre Jordan aflífar Brandon Knight með troðslu ársins...
Labels:
Aflífun,
Brandon Knight,
DeAndre Jordan,
Dunks,
Facial,
RUGL
Sunday, March 10, 2013
Kobe Bryant er að spila sinn besta bolta í langan tíma
27,9 stig - 5,7 stoðsendingar - 5,4 fráköst - 1,3 stolnir - PER 23,6 - TS% 57,9 - eFG% 51,8
Bull tölur. TS% og eFG% hans á þessu ári er það hæsta á ferlinum.
Labels:
Black Mamba,
Kobe Bryant,
Mix
Thursday, March 7, 2013
New Orleans Failicans
Hornets/Pelicans ákváðu að dekka vitlausa körfu í innkasti gegn Lakers á lokamínútu leiksins. Tröllvaxið FAIL hjá þessu annars seinheppna liði. Eru þetta ekki atvinnumenn í körfubolta annars?
Wednesday, March 6, 2013
Ekki heima hjá mér vinur
Serge Ibaka rekur þessa troðslutilraun Dwight Howard ofan í kokið á honum aftur.
Tuesday, March 5, 2013
Monday, March 4, 2013
Hvernig er veðrið þarna uppi?
Vissum öll að LeBron James getur stokkið út úr byggingunni, en hér hafið þið skjáskot af alley-oop tilraun drengsins á móti Knicks í nótt þar sem sést hversu FÁRÁNLEGA hátt uppi hann er. Vissulega er sjónarhornið að ýkja þetta eitthvað en það er engu líkara en hann sé með HANDARKRIKANN við hringinn. Þetta er bara lögbrot og mál fyrir alþjóðadómstóla hvað þetta er mikill íþróttamaður.
Hættið að hata manninn og njótið á meðan þetta er í boði.
Hættið að hata manninn og njótið á meðan þetta er í boði.
Labels:
Eðlilegt,
Freak,
LeBron James,
RUGL,
WTF,
Þyngdarafl hvað
Ótrúlegur bözzer í high school boltanum
Brilljant ákvörðun hjá leikmanni nr. 20 hjá Mt. Vernon að gefa boltann tveimur stigum yfir og með tvær sekúndur eftir af klukkunni.
Sunday, March 3, 2013
Saturday, March 2, 2013
Friday, March 1, 2013
Kobe treður í grímuna á Pekovic
Nokkur atriði sem þarf að nefna við þetta myndband. Takið eftir því hvað Kobe þarf stuttan tíma til að skilja Derrick Williams eftir í rykinu. Dwight Howard kemur vinstra megin að Williams til að setja hindrun fyrir Kobe. Williams lítur eitt örlítið sekúndubrot til vinstri - FRÁ KOBE. Eitt ööörlítið augnablik sem hann tekur augun af einum allra besta körfuboltaleikmanni jarðar... og borgar fyrir það dýrum dómi.
Kobe þarf ekki meira. Þrátt fyrir "háan" aldur er hann með gríðarlega öflugt fyrsta skref og "footwork" sem ætti að vera í skólabókum til að kenna ungum körfuboltaleikmönnum.
Pek reynir svo að bæta upp fyrir þessi öööörlitlu mistök hans Derrick Williams og borgar einnig fyrir það dýrum dómi... með smettið á plakati og í SportCenter highlights.
Poetry in motion.
Miami Heat fara all in í Harlem Shake
Það sem ég sé í þessu myndbandi:
Ef ríkjandi NBA meistarar þora að gera Harlem Shake myndband þá hljóta fleiri lið í Dominos deildinni að slá til.... komaso!
- Birdman er snillingur
- LeBron James er kóngurinn
- Chris Bosh veit ekkert hvað hann er að gera
- Dwyane Wade er með bangsahausinn
- Mario Chalmers flottur í Super Mario búningnum
- Haslem með slökkviliðshjálminn
Ef ríkjandi NBA meistarar þora að gera Harlem Shake myndband þá hljóta fleiri lið í Dominos deildinni að slá til.... komaso!
Subscribe to:
Posts (Atom)